kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég er talsmaður þess að fólk fái að ráða sér sjálft í lífi og eftir það, hvernig sem það er, sem mest. Þetta er auðvitað bara einstaklingsbundin ákvörðun hvers og eins hvernig hann vill láta fara með sig eftir andlátið. Svona oftast nær held ég að fólk sé búið að gera einhver plön um það. Svo fremi sem það stríðir ekki gegn einhverju almennu siðferði eða lögum á þeirri stundu og á þeim tíma eða skaði einhvern eða hafi neikvæð áhrif á aðra eða umhverfið, þá á þetta bara að vera í höndum hvers og eins. Það er fleira í okkar samfélagi sem mér finnst að mætti fara að losa um. Sumt af þessu er barn síns tíma og einhvern tímann voru tímarnir auðvitað aðrir. En þetta er eitt af því sem hér er lagt fram í frumvarpi sem ég fagna. Ég hef líka aðeins verið að kynna mér þetta. Við erum að tala um það þegar lík hefur verið brennt. Það er varla hægt að tala um einhverjar sérstakar jarðneskar leifar. Þetta er í rauninni aska, stútfull af steinefnum eftir því sem ég kemst næst, ég er nú ekki efnafræðingur þannig að ef ég er að fara með rangt mál þá endilega leiðréttir mig einhver mér fróðari um þessi efni. Þetta er aska sem í rauninni getur ekki valdið neinum skaða í náttúrunni og getur jafnvel einungis orðið til gagns ef því er að skipta. Allir sjúkdómar eru úr sögunni í þessu efni og allar erfðaupplýsingar og allt lífrænt og í rauninni er þetta kannski bara eins og við séum að tæma öskustóna eða kamínuna okkar. Ég held að þetta sé í rauninni bara efni sem geti þess vegna farið alls staðar niður úti í náttúrunni og valdið akkúrat engum skaða.
Líkbrennsla hefur náttúrlega aukist gríðarlega og ég held að flestallir séu mjög sáttir við þessa þróun. Það hefur verið komið inn á það hér að greftrunarpláss er virkilega orðið af skornum skammti víða. Það er bara margt svo gott í þessu og allnokkrir sem ég hef heyrt í svona fyrir andlát eru algerlega á því að það komi ekkert annað til greina heldur en að láta brenna sig, eins og manni þótti nú kannski tilhugsunin einu sinni pínu óhugguleg, þegar maður var að hugsa um þetta fyrst, að vera sendur þarna í ofninn en þá er náttúrlega viðkomandi ekki lengur þar, þ.e. persónan. En þetta hugnast bara mjög mörgum vel. Þegar upp er staðið þá erum við bara að tala um tilfinningalega hlutann af þessu máli og minningaþáttinn og þessar tilfinningar. Mér finnst mikilvægt, því við erum að hugsa þarna til ættingja og aðstandenda og ástvina, að við berum virðingu fyrir þessum tilfinningum og losum um þessi stífu höft sem eru í þessu sambandi þannig að það séu ættingjarnir og niðjarnir sem fái að ráðstafa þessari ösku. Hvort aðstandendum hugnist það að hafa öskuna upp á hillu um tíma þar til farið er með hana í jörðu eða til lengri tíma kemur í rauninni ekkert öðrum við, myndi ég segja. Það er eins og að vera óþarflega að kafa með nefið ofan í annarra manna mál. Þetta er algerlega skaðlaust. Ég hef nú prófað að ímynda mér hvernig væri ef ég væri komin þarna handan og nú væri bara amma í ösku uppi á hillu. Ég held að það væri bara fínt mál, það væri allt í lagi með það.
Þetta hefur bara svo gríðarlegt tilfinningalegt gildi fyrir aðstandendur og ég vil endilega að við virðum það. Þetta skiptir aðra í þjóðfélaginu og samfélaginu akkúrat engu máli, þetta er aska hins látna sem er án lífrænna efna og hefur því ekki meiri áhrif á umhverfið en hvers konar aska sem kemur þess vegna úr eldstæðum.
Þegar kemur að öskudreifingu þá munu kannski vera alls konar útfærslur og það getur vel verið að það sé gott að leggjast yfir einhver atriði í reglugerð eða gera smátilraun á því að hafa kannski enga reglugerð í einhvern tíma og sjá hvað gerist. Þá má setja reglugerð ef við förum að sjá krossa og laufblöð og guð má vita hvað úti um allt og alls staðar þar sem búið er að setja niður ösku. En ég held að við séum nokkuð að ofhugsa þetta oft og hrædd við að eitthvað muni gerast sem ekkert endilega mun gerast. Stundum þarf bara að prófa og láta reyna á hlutina og vera þá tilbúin í endurskoðun og endurmat. Stundum hugsa ég bara að við eigum algerlega að afnema allar kvaðir og reglur og bara að leyfa þessu sem sagt að gera sig eins og það vill og hætta algerlega opinberri íhlutun um slíkt. En ég vil alveg gefa því séns að einhverjir aðrir sjái aðra fleti á þessu en ég sem mikilvægt er að setja í reglugerð.
Í rauninni finnst mér, ef ég hugsa þetta bara út frá því að þetta er skaðlaust efni, að maður þurfi ekki einu sinni að tengja þetta neitt við trúmálin. Þetta er bara annað mál. En ég skil vel vangaveltur margra og ber virðingu fyrir því. En ég fagna því að þetta mál sé komið hingað. Ég verð reyndar að segja að það er verið að leggja þetta fram í sjötta eða sjöunda sinn og mér finnst það pínu skrýtið, að það þurfi virkilega svo margar tilraunir til þess einhvern veginn að fólk sé tilbúið til að horfast í augu við þetta. Við þurfum að vera dálítið duglegri við að stíga upp úr einhverjum gömlum reglum og lögum. Ef við hugsum bara til baka þá hefur svo margt breyst fram til dagsins í dag og við erum orðin svona, ef ég má, með leyfi forseta, nota orðið líberal, við erum meira líberal í svo ótal mörgum hlutum og þáttum núna heldur en nokkurn tímann áður og þetta er bara eitt af því. Það er fleira sem á eftir að koma hér inn í þingið sem er af sama meiði sem ég mun einnig vilja styðja. Það er frelsi einstaklingsins að taka ákvarðanir með sínu fólki svo framarlega sem þær ákvarðanir valdi ekki öðrum skaða eða hafi neikvæð áhrif á umhverfið.