156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

ráðstöfun útvarpsgjalds.

104. mál
[16:48]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu sem gengur út á að auka frelsi almennings til að ráðstafa útvarpsgjaldi sínu að eigin mati og hentugleika. Það hefur fjölgað mjög í þeim hópi sem mælir fyrir þessu máli. Við höfum verið hér af og til tveir sem höfum mælt fyrir þessu, ég og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Með mér á málinu núna eru hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Þorgrímur Sigmundsson, Jens Garðar Helgason, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Pétur Zimsen, Jón Gunnarsson og Ólafur Adolfsson.

Ástæða þess að ég les hér upp alla meðflutningsmenn á þessu máli er kannski til að draga fram að tónninn í umræðunni hefur verið að breytast. Þetta er í fimmta skipti sem ég mæli fyrir þessu máli og ég held að þörfin fyrir það að breyta og vinda ofan af þessari yfirburðastöðu sem Ríkisútvarpið hefur á fjölmiðlamarkaði og orsakar lempandi áhrif á alla frjálsu miðlana sem eru hér dagana langa í þeim slag sem þetta erfiða rekstrarumhverfi býður upp á, ég held að það sé að verða öllum sem fylgjast með ljósara að þessa stöðu þarf að jafna.

Þingsályktunartillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram frumvarp þess efnis að lögum um ráðstöfun útvarpsgjalds skuli breytt. Breytingin lúti að því að hverjum og einum greiðanda útvarpsgjalds skuli heimilt að ráðstafa allt að þriðjungi gjaldsins til annarra fjölmiðla en Ríkisútvarpsins eins og hann kýs.“

Það skýrir sig auðvitað að nokkru marki sjálft hvert markmið málsins er og þeirra frumvarpa sem ráðherrum er uppálagt að leggja fram verði þessi þingsályktunartillaga samþykkt.

Mig langar í stuttu máli að fara yfir kjarnaatriðin. Eins og ég sagði áðan er þessi þingsályktunartillaga nú flutt í fimmta sinn og var síðast lögð fram á 155. löggjafarþingi, sem sagt því síðastliðna.

Allir þeir sem skattskyldir eru á Íslandi, einstaklingar og lögaðilar, greiða sérstakt gjald til Ríkisútvarpsins ohf. Útvarpsgjaldið er á við álagningu opinberra gjalda ár hvert og sérreglur eru um það hverjir eru undanþegnir, þ.e. aldur, tekjuviðmið og síðan eldri borgarar er stutta útgáfan af því hverjir falla ekki undir þetta gjald. Það hefur auðvitað iðulega verið gagnrýnt að lögaðilar falli þarna undir. Þá sé uppsveifla í samfélaginu þar sem fjölgun fyrirtækja orsakar aukið fjárstreymi í gegnum þetta regluverk auðvitað eitthvað sem þurfi að koma til sérstakrar skoðunar.

Gjaldið nemur fastri fjárhæð sem er ákvörðuð með lögum. Hér er um að ræða nefskatt sem enginn skattskyldur aðili kemst undan að greiða. Skiptir þá engu hvort hann getur notað fjölmiðlaþjónustu Ríkisútvarpsins, hvort hann sættir sig við hana eða hvort hann yfirhöfuð skilur hana.

Með tillögu þessari er lagt til að unnið verði að breytingum á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, sem fela í sér breytt fyrirkomulag við innheimtu útvarpsgjalds. Lagt er til að landsmenn hafi valfrelsi um ráðstöfun hluta þessa gjalds. Þannig geti þeir með framlagi sínu tryggt tiltekinn fjölbreytileika í rekstri fjölmiðla á Íslandi. Með því að sitja eitt að þessum gjaldstofni hefur Ríkisútvarpið haft yfirburðastöðu gagnvart öllum öðrum fjölmiðlum og gildir það um fréttaflutning sem og dagskrárgerð. Slík einokunarstaða, sérstaklega ríkismiðils, er óeðlileg nú á tímum og vinnur beinlínis gegn hugmyndum um sjálfstæði og fjölbreytni hugsana og skoðana.

Það má vera ljóst að það dytti engum til hugar að stofna Ríkisútvarpið í því formi sem það starfar í dag væri verið að koma að auðu blaði í þeim efnum. Það er auðvitað hlutur sem við þurfum að hafa í huga í öllu þessu mati sem á sér stað varðandi sérstaklega rekstrarskilyrði einkareknu miðlanna.

Í 1. gr. laga um Ríkisútvarpið er tiltekið að markmið þeirra sé að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í samfélaginu með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Ríkisútvarpinu er þannig falin framkvæmd þessarar stefnu stjórnvalda. Það sé þjóðarmiðill og skuli rækja fjölbreytt hlutverk sitt af fagmennsku, metnaði, heiðarleika og virðingu. Þá skuli það leggja rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð.

Það er skoðun flutningsmanna þessarar tillögu að til þess að Ríkisútvarpið geti rækt þessa skyldu þurfi að vera rými fyrir aðra öfluga fjölmiðla á markaðinum. Hér er átt við fjölmiðla sem geta veitt Ríkisútvarpinu aðhald og um leið aukið fjölbreytileika þjóðfélagsumræðunnar og eflt frekar skilning almennings á henni. Í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/65/EB kemur fram að fjölmiðlalæsi snúist um að gera neytendum kleift að nýta sér fjölmiðla á öruggan og skilvirkan hátt. Áhrif fjölmiðla á samfélagið eru svo viðamikil að fjölmiðlalæsi neytenda er ein af grundvallarforsendum þess að þeir geti talist fullgildir og virkir borgarar í lýðræðisríki. Að veita einum ríkisreknum miðli lungann úr fjölmiðlastyrkjum hins opinbera vinnur beinlínis gegn þessum markmiðum.

Undanfarið hafa birst margvíslegar upplýsingar um að stjórnendur Ríkisútvarpsins telji sig hafa sjálfdæmi um það hvernig staðið er að rekstri þess. Bæði Ríkisendurskoðun og fjölmiðlanefnd hafa ítrekað gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi Ríkisútvarpsins og framkvæmd á ýmsum lögbundnum skilyrðum sem gilda um rekstur stofnunarinnar. Hvað lögbundnar skyldur hennar varðar má jafnframt benda á að Ríkisútvarpið gegnir nú á dögum hvergi nærri sama öryggishlutverki og fyrr á tíð.

Nefskattur á borð við útvarpsgjald þekkist nú þegar í lögum um sóknargjöld. Þar er kveðið á um að þjóðkirkjusöfnuðir og skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög samkvæmt lögum um þau skuli eiga ákveðna hlutdeild í tekjuskatti sem lagður er á samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt. Er það val skattgreiðenda til hvaða safnaðar gjaldið rennur. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að útfæra útvarpsgjaldið á svipaðan hátt, t.d. þannig að skattskyldur aðili tilgreini á skattframtali hverju sinni hvert hann vill beina hluta útvarpsgjaldsins.

Um árabil hefur verið rætt um að takmarka umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og renna þannig styrkari stoðum undir frjálsa fjölmiðla. Augljóslega hefur slík útfærsla ekki hlotið brautargengi. Telja því flutningsmenn tillögunnar rétt að fara þessa leið með farsæld frjálsrar fjölmiðlunar fyrir augum og tryggja þannig heilbrigðari og fjölbreyttari þjóðmálaumræðu í landinu.

Að þessu sögðu legg ég til að málið gangi að aflokinni þessari umræðu til allsherjar- og menntamálanefndar og fái vonandi snögga og jákvæða afgreiðslu þar, enda hefur nefndin fengið það fjórum sinnum áður til sín og ýmsar umsagnir og sjónarmið liggja fyrir.