ráðstöfun útvarpsgjalds.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir svarið og langar einmitt að undirstrika hér að auðvitað skiptir mjög miklu máli að hið opinbera freistist þá ekki til eða við hér í þessum sal freistumst ekki til að sníða of þröngan stakk um það hvað eru fjölmiðlar eins og við þekkjum þá í dag og ég þakka fyrir að vel hafi verið tekið í þessa ábendingu. Það er samt líka ábyrgðarhluti okkar að þetta útvarpsgjald — sem er nefnilega töluverð fjárhæð og er eiginlega að mínu viti um margt merkilegt af hverju þessari fjárhæð er ekki mótmælt oftar, hvað allir eru svona skuldbundnir til að greiða, hvort sem þeir eru hrifnir af þeirri miðlun sem á sér stað eða ekki. Þetta eru talsverðar fjárhæðir og við vitum að það verður ákveðinn freistnivandi að ásælast svona þá fjármuni ef þess er nokkur kostur. Þannig að ég held að það skipti máli, og nú er ég ekki endilega með lausnina hér og nú, að reyna að feta þann veg að annars vegar reyna að halda fókusnum sem er að fólk geti valið að styðja við aðra fjölmiðla á Íslandi en RÚV en passa að þeir fari þá ekki um víðan völl en samt ekki vera of einstrengingslegur í því hvernig það er skilgreint.
Hérna eru miklir hagsmunir í húfi og ég held að þetta geti verið mjög mikilvægt skref í að rétta hérna af ákveðna samkeppnisstöðu sem hefur bara reynst mjög erfitt. Það hefur enginn komið með neina lausn sem hefur virkað hingað til. Eigum við kannski að vona að þetta gæti verið fyrsta skrefið í því? Ég hef nú stundum sagt til gamans að fólk megi ekki gleyma því að það var mögulega vegna mistaka, eða ekki, en þegar mbl.is byrjaði þá hefði það mögulega ekki byrjað nema af því að ruv.is mátti ekki selja auglýsingar. Hvort sem það var viljandi eða ekki, mögulega óviljandi, þá er það eitt besta dæmið um að þegar RÚV mátti ekki selja auglýsingar (Forseti hringir.) þá náði markaðurinn að öðru leyti að blómstra.