156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.

22. mál
[18:05]
Horfa

Flm. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Ég flyt hér tillögu til þingsályktunar um óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma. Flutningsmenn með mér eru þingmenn Framsóknar, hv. þm. Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Stefán Vagn Stefánsson og Þórarinn Ingi Pétursson.

Tillagan hljómar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að vinna að aðgerðaáætlun sem miði að því að óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma standi einstaklingum til boða. Ráðherra kynni Alþingi aðgerðaáætlunina eigi síðar en haustið 2025.“

Tilurð þessa verkefnis er að þegar ég kom í fjármálaráðuneytið þá var þetta eitt af þeim verkefnum sem höfðu blundað með mér á síðustu árum, að það væri mikilvægt að geta gert þessa breytingu í íslensku samfélagi. Ég vissi af áhuga þónokkurra aðila sem hafa starfað í kringum fjármálamarkaðinn, vissi um mann sem heitir dr. Jón Helgi Egilsson og var í sérstakri aðstöðu til þess að geta unnið slíka vinnu, hitti hann og fékk hann í það verkefni að gera skýrslu sem myndi lúta að því að átta sig á því hverjar fyrirmyndirnar væru, af því að þetta er í boði í öllum nálægum ríkjum í kringum okkur, hverjar hugsanlega hindranir væru á íslenskum markaði til þess að þetta gæti gengið eftir og eins þá að skoða þær leiðir sem væru færar í þessu. Þessi vinna fór af stað á haustdögum á síðastliðnu ári og meiningin var að skila skýrslu hér í febrúar. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Daði Már Kristófersson, hefur sagt mér að sú skýrsla sé komin í hús. Ég hef sent fyrirspurn á ráðuneytið á ráðherrann og óskað eftir að þessi skýrsla verði birt, eða spurt hvort ekki standi til að birta hana, sem og hvort núverandi fjármála- og efnahagsráðherra hyggist þá ekki nýta þessa skýrslu til þessa verkefnis sem þessi þingsályktunartillaga snýst um.

Markmið tillögunnar er í raun og veru að að tryggja það að bankar, og e.t.v. aðrir fasteignalánaveitendur ef það þykir henta, geti boðið fasteignakaupendum hér á landi upp á óverðtryggð lán á föstum vöxtum til langs tíma. Það er réttlætismál fyrir neytendur hér á Íslandi að eiga þennan kost, en eins og ég nefndi þá er þetta fyrirkomulag sem þekkist í öllum löndum í kringum okkur, þar með talið auðvitað á öllum Norðurlöndunum en líka bara í ríkjunum í kringum okkur, Bretlandi, Bandaríkjunum, Hollandi, Þýskalandi og fleiri ríkjum. Íslenskir fasteignakaupendur njóta nefnilega ekki sambærilegra kjara á þessum löngu óverðtryggðu lánum og fasteignakaupendur í nágrannalöndunum þar sem bankarnir eiga ekki þessa vöru í hillu sinni. Þeir geta ekki boðið þennan valkost, einfaldlega vegna þess að íslenskir bankar eru of smáir til að eiga þess kost að bjóða fram slíka fjármálaþjónustu, þar sem þeir eru að hluta til bundnir af eigin fjármögnunarkjörum. Aftur á móti er íslenska ríkið, ríkissjóður, lífeyrissjóðirnir eru það líka, þessir saman, að vissu leyti í yfirburðastöðu á íslenskum fjármálamarkaði og geta með einfaldari hætti og á hagstæðari kjörum haft aðgang sérstaklega þegar kemur að langtímafjármögnun.

Viðfangsefnið, sem ég vona að birtist í þessari skýrslu sem ég hlakka til að sjá og vænti þess að fjármála- og efnahagsráðherra sé tilbúinn að birta hana, gengur út á að bankarnir geti fjármagnað húsnæðislán á óverðtryggðum vöxtum til lengri tíma en þeir geta boðið upp á í dag. Ég býst við að þetta þýði að það þurfi að breyta reglum og það þurfi þróaðri fjármálamarkaði og að til að mynda sé hægt, og ég nefni það hér í greinargerðinni, að gera það í gegnum vaxtaskiptasamninga, en það eru samningar þar sem aðilar skiptast á föstum og breytilegum vaxtagreiðslum á tilteknum höfuðstóli yfir ákveðið tímabil. Það væri sem sagt hægt að auðvelda bönkunum að bjóða upp á slík lán, hvort sem það er ríkið eða lífeyrissjóðir eða með öðrum hætti, aðilar sem gætu tekið langtímalán, og í vaxtaskiptasamningum við bankana þá gætu þeir, til að geta lánað húsnæðislán til einstaklinga, fengið slík lán og á móti fjármagnað þau á skammtímavöxtum við aðra aðila.

Stjórnvöld eiga að geta boðið upp á það að bæta regluverkið. Það er verkefni okkar hérna í löggjafarsamkomunni. Með því að búa til réttara og betra regluverk þá getur fjármálaráðuneytið, og Seðlabankinn eftir atvikum, liðkað fyrir á fjármálamarkaði til að tryggja að svona geti gengið eftir. Þetta er jú gert í nágrannalöndum okkar og í mínum huga ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að það yrði einnig við lýði hér á landi. Það er gríðarlegt hagsmunamál fasteignakaupenda, og þar með heimilanna, að festa vaxtakjör til lengri tíma þannig að húsnæðislántakendum sé ekki refsað afturvirkt þegar vextir hækka eins og við þekkjum þegar menn eru í verðtryggðu umhverfi.

Við höfum séð á síðustu árum að verðtryggð skuldabréf bankanna sem þeir hafa verið fjármagna húsnæðislán með hafa farið vaxandi. Við vitum að uppgreiðsluákvæðin í samningum hér á landi eru stífari heldur en í mörgum nágrannalöndunum og það mun þurfa að fara yfir slíkt regluverk. Það er eitt af því sem ég býst við að við munum sjá í þessari skýrslu og ég held að sé hluti af því verkefni sem við værum, með því að samþykkja slíka þingsályktunartillögu, að fela fjármála- og efnahagsráðherra að vinna. En fyrirsjáanleikinn við fjármögnun sem næst með þessum hætti er auðvitað það sem skiptir heimilin öllu máli. Tökum dæmi af rúmlega 2 millj. kr. dönsku láni, sem sagt danskar krónur, til 30 ára. Það eru kallaðir 3,55% vextir og ég veit að margir hér á Íslandi hafa haldið því fram að það séu vextirnir sem bjóðast fasteignakaupandanum. Það er auðvitað ekki svo því að ofan á þetta leggjast síðan ákveðnir þættir sem gera það að verkum að vextirnir eru í kringum 5%, tæplega 5%. En af þessu rúmlega 2 millj. kr. dönskukrónaláni borgar aðilinn, og veit af því þegar hann tekur lánið, rúmlega 1,5 milljónir danskar krónur ofan á lánið, þ.e. heildarkostnaðurinn á 30 árum við að taka 2 millj. kr. danskt lán, sem eru þá einhverjar 40 milljónir, eru 3,6 danskar milljónir og þú veist það fyrir fram og þú borgar á þriggja mánaða fresti fasta tölu. Það er þetta sem við erum að tala um.

Af hverju getum við ekki gert þetta hér? Jú, það er vegna þess að við erum ekki með nægilega þróaðan fjármálamarkað. Við erum ekki með rétta regluverkið og við höfum ekki horft á þennan möguleika sem raunverulegan möguleika. Ég hef séð á síðustu mánuðum bankastjóra Arion banka, Benedikt Gíslason, halda því fram að þetta sé hægt og hann hefur verið að stinga upp á slíkum hugmyndum. Þær lúta flestar að því að taka þá erlent lán með þessari langtímafjármögnun og þá kæmi inn í það einhver gjaldeyrisáhætta. Það er eitt af því sem þarf að skoða í svona verkefni af því að við viljum ekki bæta gjaldeyrisáhættu við. Við vitum reyndar að dönsku lánin eru að stóru leyti eins og gamla húsnæðislánakerfið var á Íslandi og eru fjármögnuð að megninu til með erlendri lántöku, bandarískum sjóðum sem fjármagna danska húsnæðiskerfið. Bankarnir sækja um lán til sérstakra stofnana fyrir þau hús sem þeir geta fengið og geta síðan veitt lán, eins og ég var að lýsa hér áðan, upp að 80% veðsetningu, svo fremi sem stofnunin metur að þetta hús sé eðlilegt og standi undir því verði sem kaupverðið snýst um. Í Noregi og Svíþjóð eru menn með flóknara eða öðruvísi fyrirkomulag, þar er minna um erlent fé sem stendur að baki þessu. Við þurfum auðvitað að skoða alla þessa þætti sem henta fyrir Ísland. Þetta er eitt af því sem ég tel að sé mjög mikilvægt að við hér á þinginu felum ráðherranum að vinna áfram á grundvelli þessarar skýrslu.

Ávinningurinn, hér undir lokin, frú forseti, getur verið margvíslegur. Í fyrsta lagi ber að nefna þann augljósa ábata að íbúðarkaupendur getað fengið hagstæðari fasteignalán og verulega aukinn fyrirsjáanleika, eins og ég var að lýsa í þessu danska dæmi. Í öðru lagi: Verði farin þessi vaxtaskiptasamningsleið þá má búast við að ríkissjóður, ef hann myndi að hluta til fjármagna þessi löngu lán, gæti lækkað vaxtakostnað sinn með því að færa vaxtagreiðslur sínar í meira mæli yfir í skammtímavexti sem eru yfirleitt lægri en langtímavextir. Og í þriðja lagi má gera ráð fyrir að verðtryggð lán heyri sögunni til ef óverðtryggð lán á föstum vöxtum til langs tíma standa fasteignakaupendum til boða. Og ef lífeyrissjóðirnir taka þátt í þessu þá geta þeir farið út úr hinu verðtryggða umhverfi sem við erum búin að þekkja hér í tæp 40 ár. Þannig að ávinningurinn af þessari leið er margvíslegur.

Við í Framsókn kynntum þetta til sögunnar, eðlilega, í óvæntri kosningabaráttu í haust og gagnrýnin sem við fengum var þessi: Af hverju ertu ekki búinn að þessu? Ertu ekki búinn að vera í ríkisstjórn í sjö ár? Ég fór yfir það í innganginum að þetta var eitt af þeim fyrstu verkefnum sem ég setti í gang þegar ég kom inn í fjármálaráðuneytið. Af hverju var ekki búið að gera þetta löngu fyrr? Ég get ekki svarað því en ég get svarað því að þetta er verkefni sem er komið á dagskrá. Þetta er verkefni þar sem það liggur fyrir skýrsla uppi í fjármálaráðuneyti um þær fyrirmyndir sem finnast í löndunum í kringum okkur og þær eru mismunandi og það þarf að vinna áframhaldandi vinnu til að breyta hér lögum og regluverki, til að búa til þennan þróaðri fjármálamarkað til að þessi vara geti orðið til, til að bankarnir geti gert þetta. En ávinningurinn er þvílíkur að þetta er ekki eitthvað sem við getum bara sagt hafi verið eitthvert kosningamál. Þetta er ekki kosningamál, þetta er verkefni og eitt af þeim mikilvægari sem við eigum að fara í hér á næstu mánuðum. Þó svo að það sé auðvitað gleðilegt að bæði verðbólga og þar með vextir séu að lækka þá viljum við engu að síður komast í þetta umhverfi. Ég segi gleðilegt, þetta er svo sem í þeim takti sem við höfðum búist við. Einhvern tímann sagði ég í þessum ræðustól, fyrir nokkrum mánuðum: Þetta er allt að koma. Og það er satt, þetta er allt að koma. Vextirnir eru á niðurleið. Verðbólgan er komin niður fyrir mörk Seðlabankans, var það nú reyndar þegar í haust, en stýrivextirnir koma seinna niður. Þetta verkefni er bara sjálfstætt verkefni um það að búa hér til, alveg eins og í öllum löndum í kringum okkur, þróað kerfi sem gerir það að verkum að húskaupendur geta tekið lán, óverðtryggt lán á föstum vöxtum til langs tíma með fyrirsjáanleika um hvað þeir eiga að greiða fyrir lánið og greiða það allan tímann.

Ég get líka nefnt það, af því að hér voru nefndir 5% vextir í Danmörku, að þegar verðbólga var fyrir tveimur, þremur árum hærri í Danmörku þá voru vextir á þessum lánum 8%, sem eru 5% í dag, því að auðvitað tekur þetta mið af verðbólgu hvers tíma. Þess vegna þarf regluverkið í kringum uppgreiðslu og möguleika fólks á að endurfjármagna að vera til staðar. Það er eitt af því sem þarf að skoða í svona vinnu. Þannig að ég vil hér undir lok minnar ræðu leggja það til að þetta mál, eftir þessa umræðu, fari væntanlega í efnahags- og viðskiptanefnd, myndi ég halda.