156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.

22. mál
[18:39]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma. Ég þekki þennan málaflokk ágætlega frá mínu fyrra starfi sem formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og um tíma sem forseti Alþýðusambands Íslands og þau áhrif sem þau lánakjör hafa á okkar fólk á Íslandi og hafa gert núna að undanförnu. Þetta er auðvitað stórt vandamál sem blasir við heimilunum í dag og síðustu ár sem er ekki gott. Það hefur verið draumur okkar Íslendinga áratugum saman að geta boðið upp á óverðtryggð fasteignalán á lágum föstum vöxtum til langs tíma. Hér held ég að það skipti máli að þetta séu lágir vextir til langs tíma í þessu krónuhagkerfi. En það hefur hins vegar ekki verið framkvæmanlegt hingað til og það má alveg velta fyrir sér hvað veldur því. Það hefur verið komið inn á stöðu gjaldmiðils og þau málefni. Efnahagsstjórnin skiptir líka miklu máli. En mér finnst skipta mestu máli í þessu að vextir séu lágir og þá hefði ég viljað einmitt horfa til þeirra vaxtakjara sem nágrönnum okkar í Evrópu stendur oftar en ekki til boða, en ekki okkur. Ég velti því hreinlega fyrir mér hvort staðan hér á landi tengist þeirri staðreynd að við búum í litlu hagkerfi með örmynt og það er eitthvað sem við þurfum að takast á við og rýna. Efnahagsstjórnin getur auðvitað skilað miklum ávinningi líka.

Ég vil spyrja hv. 10. þm. Suðurk. tveggja spurninga. Í fyrsta lagi, þó að auðvitað kæmu ákveðin svör við því áðan í kynningu hv. þingmanns: Af hverju var ekki farið í að bjóða upp á þessi lán á þeim ellefu árum sem hann sjálfur og flokkur hans sátu meira og minna í ríkisstjórn, að nokkrum mánuðum undanskildum, þegar vaxtakjör voru hér viðráðanleg og kynnt var að tímar lágra vaxta hér á landi væru komnir til að vera?

Í öðru lagi segir í greinargerð þingsályktunartillögunnar, með leyfi forseta:

„Með breyttum reglum og þróaðri fjármálamarkaði, til að mynda í gegnum vaxtaskiptasamninga, en það eru samningar þar sem aðilar skiptast á föstum og breytilegum vaxtagreiðslum af tilteknum höfuðstól yfir ákveðið tímabil, er hægt að auðvelda bönkum að bjóða upp á slík lán.“

En þá spyr ég líka: Hvaða reglum á að breyta og hverjir eru það sem eiga að gera umrædda vaxtaskiptasamninga sem eiga að mynda grunninn að þessu nýja kerfi? Þetta er það sem ég myndi vilja fá skýringu á.