svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir góða fyrirspurn. Ég byrja á að segja að hvað einstaka alþingismenn tjá sig um er ekki sú stefna sem við erum að fylgja. Hér eru náttúrlega allir frjálsir að sínum skoðunum. En hvað lýtur að málum fráfarandi ríkisstjórnar þá er það alveg rétt að hv. þingmaður hefur bara skilið eftir í sínu ráðuneyti afskaplega mikið af áhugaverðum og góðum málum sem ég mun í engu gera lítið úr og frekar taka utan um og fylgja eftir, vegna þess að við í þessari ríkisstjórn munum fylgja eftir öllum góðum málum, hvaðan sem þau koma, svo lengi og fremi sem við teljum að það sé til hagsbóta fyrir samfélagið. Það mun ég segja að hv. þingmaður á hrós skilið fyrir það. Hvað lýtur að því sem við þurfum að gera og byggja upp í borginni og hverjir eru að skipa þennan hóp þá er ég afskaplega stolt af þessum hópi. Það eru ýmsar væringar í gangi þar sem ég veit nú ekki hvort er tímabært að tíunda hér þar sem mjög fljótlega verður vonandi birtur samningur þessarar nýju borgarstjórnar sem vonandi verður að veruleika. Þar mun margt ánægjulegt koma á óvart og þar á meðal stórkostlegt átak í uppbyggingu á húsnæði, svo þúsundum og aftur þúsundum íbúða skiptir.