starfsemi Flokks fólksins.
Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur hjartanlega fyrir hinn mikla áhuga sem hún hefur á Flokki fólksins. Við getum alltaf tekið á móti nýjum félögum, sérstaklega þeim sem halda að við þurfum á aðstoð að halda til að geta rekið stjórnmálaflokkinn Flokk fólksins af einhverju viti.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina og vil í fyrsta lagi segja að það er alrangt að Flokkur fólksins hafi ekki uppfyllt öll meginskilyrði fyrir því að hljóta styrk á hverju ári miðað við þingstyrk sinn eins og aðrir stjórnmálaflokkar hafa fengið. Eitt meginskilyrðið er einmitt að fá fulltrúa réttkjörna á Alþingi sem Flokkur fólksins hefur fengið allt frá alþingiskosningunum 2017 og jók þingstyrk sinn allverulega í síðustu kosningum, sælla minninga fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem skilað hefur Flokki fólksins í ríkisstjórn.
Í öðru lagi hefur Flokkur fólksins skila nákvæmum og löglega endurskoðuðum ársreikningum til Ríkisendurskoðunar sem hefur samþykkt þá reikninga skilyrðislaust þar sem öll fjármál Flokks fólksins eru uppi á borðum, þar sem engu er leynt og öllum er aðgengilegt. Allt frá því að lögum var breytt 2021 og 2022 hefur Flokkur fólksins sem stjórnmálaflokkur sótt um og fengið styrki frá ríkissjóði í samræmi við þingstyrk sinn, rétt eins og aðrir flokkar sem margir hverjir höfðu t.d. ekki áttað sig á reglunni um skráninguna. Fjármálaráðuneytið sem sá um greiðslu styrkjanna 2023 og 2024 gerði aldrei neinar athugasemdir við umsóknir flokksins eða benti á að þar vantaði eitthvað upp á að skilyrðum væri fullnægt. Starfsmenn flokksins urðu þess hins vegar áskynja í febrúar í fyrra að sennilega væri flokkurinn ekki rétt skráður hjá fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá og þegar flokkurinn óskaði eftir breytingum á skráningu kom í ljós að það dugði ekki félaginu að óska bara eftir breytingu stjórnar heldur þurfti landsfundur að koma til. Hvað lýtur að því hvenær Flokkur fólksins heldur landsfund sinn, sem að jafnaði á að vera þriðja hvert ár, kemur það bara akkúrat engum öðrum stjórnmálaflokkum við. Við í Flokki fólksins höldum landsfund nákvæmlega þegar okkur sýnist. Næsti landsfundur verður næstkomandi laugardag og ég býð bara alla velkomna sem langar til að skoða hið fallega innra starf og hið frábæra starf Flokks fólksins, koma og vera velkomin og þiggja með okkur kaffi og croissant og sjá hvað við erum frábær.