156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

starfsemi Flokks fólksins.

[10:41]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að mér hafi nú þótt það bæði rýrt og ekki rétt. Það er bara í stuttu máli hægt að segja að það er ekki um nein meginskilyrða að ræða. Þessi skilyrði eru þrjú og þau eru frekar skýr og það má ekki sleppa neinu þeirra. Það liggur beinast við að spyrja: Ef þetta er viðhorf hæstv. ráðherra, af hverju sættir hún sig þá við að flokkur hennar fái ekki greitt fyrir árið í ár? Hvað er þá að vanbúnaði?

Ég vil í minni síðari fyrirspurn spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hvort hún tilkynnti eða gaf það í skyn við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að flokkur hennar myndi ekki endurgreiða styrki þá sem flokkur hennar fékk greidda í trássi við reglur þær sem ég reifaði hér áðan, og ég endurtek að eru frekar skýrar, og það þrátt fyrir að krafa þess efnis myndi berast frá fjármálaráðuneytinu.