156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:05]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Frumvarpið var unnið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu að höfðu samráði við hagsmunaaðila og fleiri. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í upphafi síðasta árs til kynningar og athugasemda en þá höfðu áform um lagasetninguna einnig verið kynnt.

Tilefni frumvarpsins er innleiðing ákvæðis í tilskipun Evrópusambandsins sem sett var árið 2019 í því skyni að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Ákvæðið sem um ræðir snýr að töppum og lokum úr plasti sem framleiðendur setja á einnota drykkjarílát. Markmiðið með frumvarpinu er að draga úr magni plasts sem losnar út í umhverfið og áhrifum af notkun plasts hvort tveggja á umhverfið og heilsu fólks. Alkunna er að plast í umhverfinu er alþjóðlegur vandi og sá vandi fer vaxandi. Plast sem lendir úti í umhverfinu veldur mengun og virðir ekki landamæri. Við förum ekki varhluta af henni hér á landi. Reglubundnar rannsóknir síðustu ára hafa leitt í ljós að rusl sem finnst á ströndum landsins er að langstærstu leyti hlutir úr plasti og hlutir sem innihalda plast. Enn fremur eru tappar og lok einn af tíu algengustu flokkum rusls sem finnst á íslenskum ströndum. Þessar rannsóknir draga fram að plasthlutir menga haf og strendur og tappar og lok eru hluti vandans.

Hæstv. forseti. Íslenska þjóðin á mikilla hagsmuna að gæta af hreinu hafi og hreinu landi. Það er því mikilvægt að við Íslendingar leggjum okkar af mörkum þegar kemur að því að draga úr magni plasts í umhverfinu. Í því skyni er með frumvarpinu sem ég mæli hér fyrir lagt til að gerðar verði nauðsynlegar lagabreytingar til að ljúka við að innleiða í íslensk lög áðurnefnda tilskipun Evrópusambandsins sem er nr. 2019/904. Stærstur hluti tilskipunarinnar hefur þegar verið innleiddur með breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um úrvinnslugjald. Með frumvarpinu er lagt til að fellt verði inn í lög um hollustuhætti og mengunarvarnir ákvæði um að tilteknar einnota plastvörur megi einungis setja á markað ef tappar þeirra eða lok séu áfram föst við viðkomandi vörur á meðan fyrirhuguð notkun á þeim stendur yfir. Um er að ræða drykkjarílát að rúmmáli allt að 3 lítrum sem eru með tappa eða lok úr plasti, svo sem plastflöskur og samsettar umbúðir fyrir drykkjarvörur. Ætlunin er að tryggja eins og unnt er að tappar og lok fylgi ílátunum alla leið í endurvinnslufarveg.

Af frumvarpinu leiðir að eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar með plastvörum á markaði samkvæmt lögum mun taka til hins nýja ákvæðis um áfasta tappa og lok. Sama gildir um þvingunarúrræði laganna, viðurlög, málsmeðferð og kæruheimildir. Í frumvarpinu er lagt til að þau öðlist gildi 1. júlí næstkomandi. Framleiðendur og innflytjendur á íslenskum markaði hafa margir þegar mætt kröfunni um að tappar og lok á drykkjarílátum séu áföst enda hefur lengi verið fyrirséð að þessi regla taki gildi á Evrópska efnahagssvæðinu. Reglan tók gildi í aðildarríkjum Evrópusambandsins á liðnu sumri.

Hér er um að ræða hreint innleiðingarfrumvarp sem felur einungis í sér lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að innleiða lágmarkskröfur þeirrar Evróputilskipunar sem í hlut á. Þess hefur sérstaklega verið gætt við vinnslu frumvarpsins í ráðuneytinu að ganga ekki lengra en nauðsynlegt er til að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum og setja ekki ríkari skyldur á íslensk fyrirtæki heldur en önnur fyrirtæki á EES-svæðinu. Verði frumvarpið að lögum er það ekki talið munu hafa fjárhagsleg áhrif fyrir ríkissjóð. Áhrif á stjórnsýslu eða fjárhag sveitarfélaga eru jafnframt engin talin. Hins vegar má búast við samfélagslegum ávinningi af lagasetningunni samfara minni plastmengun, bættu umhverfi og betri lýðheilsu.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og tilurð þess en vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem því fylgir og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hæstv. umhverfis- og samgöngunefndar.