hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Hér er enn eitt málið á ferðinni sem virðist hafa það að markmiði að gera Ísland leiðinlegra en það þarf að vera. Það er tvennt sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um. Það var reynt að koma þessu á á kjörtímabilinu 2017–2021 og þá var sem betur fer fallið frá því, m.a. í umræðum innan umhverfis- og samgöngunefndar. En nú er þetta komið og innleiðingarmál á ferðinni. En stundum er verið að leysa vandamál sem er ekki raunverulega til staðar. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi aflað sér upplýsinga um það hvert hlutfallið er af drykkjarílátum, flöskum, sem skila sér til Endurvinnslunnar með töppum. Sem sagt: Hvað er hátt hlutfall af flöskum sem skila sér til Endurvinnslunnar sem eru með tappanum á? Ég veit svarið en ég er áhugasamur um að vita hvort ráðherrann sem hér mælir fyrir þessu leiðindamáli þekki þetta.
Í öðru lagi þá segir í 6. hluta greinargerðarinnar, um mat á áhrifum, með leyfi forseta: „Afleiðingar af samþykkt frumvarpsins fyrir almannahagsmuni verða því fyrst og fremst taldar jákvæðar.“ Fyrst og fremst. Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra að fara yfir í stuttu máli hverjar þeirra eru neikvæðar.