hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi það hér áðan að þetta frumvarp myndi gera Ísland leiðinlegra, var það ekki? Það er kannski það sem er vísað þarna til? Nei. Hv. þingmaður spyr líka um hlutfall þeirra flaskna sem fara í endurvinnslu tappalausar. Ég held að það væri bara ágætt ef hann myndi upplýsa þingheim um þetta. En svo er þetta einmitt svona dæmi um atriði sem umhverfis- og samgöngunefnd gæti dundað sér við að fá upplýsingar um við meðferð málsins. En þetta er auðvitað mikilvægt mál og ég held reyndar að þetta mál muni ekki gera Ísland leiðinlegra og vísa m.a. til þess að flest fyrirtæki hafa þegar tekið upp þessar reglur bara að eigin frumkvæði eða til samræmis við það sem tíðkast í Evrópu. Ég held að hv. þingmaður ætti ekki að hafa stórkostlegar áhyggjur af þessu en bið hv. þingmann um að upplýsa okkur endilega um hlutfallið.