156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er mér gleðiefni að upplýsa að þegar við forvitnuðumst um þetta og fallið var frá því að flýta þessari nálgun á kjörtímabilinu 2017–2021 þá minnir mig að hlutfall flaskna sem skiluðu sér með tappann skrúfaðan á til Endurvinnslunnar hafi verið 94%. Það er nú allur vandinn sem er verið að leysa hérna. Ég hugsa að það sé hærra hlutfall en 6% sem pirrar sig svo á þessum áföstu töppum að þeir slíta þá af. Ég ætla að setja fram þá kenningu að hlutfall flaskna með töppum á muni lækka í mótmælaskyni almennings við þessari dellu sem hér kemur á færibandinu frá Brussel.

Forseti. Hef ég tvær mínútur eða bara eina?

(Forseti (ÞSv): Hv. þingmaður hefur eina mínútu, það er einhver vitleysa í gangi með klukkuna.)

Við fylgjum klukkunni að sjálfsögðu. Í því ljósi að ég hef hér auka mínútu þá ætla ég aðeins að nefna að hæstv. ráðherra kom inn á að vissulega mætti líta til þess kannski að neikvæð áhrif þessa frumvarps væru möguleg leiðindi og leiðindin eru staðreynd, þessir óþolandi tappar. Þetta er af sama meiði og bölvuð pappírsrörin sem eru að gera það leiðinlegra að lifa lífinu. Maður fær sér ekki lengur súkkulaðisjeik af því að það er bara vont að sjúga síðasta þriðjunginn í gegnum uppleyst papparörið. Ég vil biðja hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) að flýta sér hægt í svona innleiðingu því þetta er gagnslaust. Þetta flækir kerfið. Ástæðan fyrir því að framleiðendur hafa innleitt þetta á síðustu árum er auðvitað sú að menn vissu að vitleysan væri á leiðinni. Menn vissu að þetta dellumakarí kæmi hér og yrði innleitt af færibandinu eins og allt hitt draslið og þess vegna var best að nýta tækifærið þegar það þurfti að uppfæra einhverja framleiðslulínu. (Forseti hringir.) Það er ástæðan. Það eru raunveruleg neikvæð áhrif, þó að þau komi ekki fram núna, (Forseti hringir.) af því að menn vissu að dellan væri á leiðinni.

(Forseti (ÞSv): Forseti sá í gegnum fingur sér við hv. þingmann vegna ruglsins á klukkunni, en ekki ganga á lagið.)