hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það var kannski engin bein spurning sem var beint hér til mín. En það er nú bara þannig að löggjöf getur ekki alltaf verið skemmtileg og stjórnsýsla getur ekki alltaf verið skemmtileg. Við erum ekki stödd hérna í sirkus heldur erum við að setja lög og reglur og erum m.a. bundin af ágætum alþjóðasamningum, m.a. þessum mikilvægasta viðskiptasamningi Íslands frá upphafi vega sem gerir þær kröfur á okkur að innleiða gerðir sem þaðan koma. Þetta er reyndar bara mjög mikilvæg gerð, verð ég að segja. Það eru 55 milljón einnota plastflöskur sem fara á markað hér á landi og ef 6% tappa skila sér ekki til Endurvinnslunnar þá þýðir það að yfir 3 milljónir tappa skila sér ekki inn á hverju ári. Eins og ég fór yfir í framsöguræðu minni er plastmengun alþjóðlegur vandi sem fer vaxandi og Evrópusambandið hefur verið framarlega þegar kemur að því að sporna gegn þessum vanda og það gerum við m.a. með svona gerðum sem við flýttum okkur aldeilis hægt að innleiða hér á landi. Eins og hv. þingmaður nefndi þá drógu stjórnvöld lappirnar um langt skeið og þetta mál er að koma hér fyrst núna fyrir þingið þegar einmitt framleiðendur hafa brugðist við, vitandi það að þessar reglur væru á leiðinni. Þetta er bara hið besta mál, held ég.