156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:16]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu á þessu mjög svo, ja, ekkert endilega spennandi máli. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki búin að lúslesa greinargerðina þar sem þetta mál sat nú fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins held ég allt síðasta þing og jafnvel þarsíðasta líka, vegna þess að það var lítill áhugi á tappamálinu þar. Mig langar aðeins að spyrja út í hvernig þessu verður fylgt eftir. Ég sé hér í greinargerðinni að það hafa komið einhverjar athugasemdir varðandi það hvernig þetta yrði útfært og ef það er rétt sem hæstv. ráðherra segir, að hér sé ekki um neina gullhúðun að ræða, þá er það mjög gott og það er eitthvað sem við hér í þessum sal þurfum að passa ítrekað þegar við innleiðum eitthvað frá Brussel. En hvernig verður þessu máli fylgt eftir? Hver verður raunverulega tappalöggan sem fer og fylgist með því hvort þær flöskur sem seldar eru í verslunum eða sjoppum, eða hvað það er, landsins séu örugglega með áfastan tappa? Ég heyrði hér í framsögunni að hæstv. ráðherra taldi þetta í rauninni ekki hafa nein áhrif önnur en til góðs. Ég get alveg tekið undir það, ég er mjög mikið á móti plastmengun og ef hægt er að koma í veg fyrir hana þá er það gott. En ég er ekki viss um að þetta sé stærsta málið til að ná árangri hvað þar að lýtur.

Spurningin mín er þá líka varðandi svona minni aðila sem eru að þróa einhverjar vörur, segjum beint frá býli eða slíkt. Er hætta á því að þetta gæti haft áhrif á slíka aðila sem eru að þróa annaðhvort matvörur eða snyrtivörur og annað í plastumbúðum? Og svo: Hvernig verður eftirlitinu með þessu háttað?