156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:18]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Um eftirlitið fer auðvitað samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eins og gildir almennt um þessi mál. Eru það ekki að einhverju leyti heilbrigðiseftirlitin sem fara með þetta? Ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af eftirfylgni þessa frumvarps og þessara reglna. Eins og hefur komið fram þá hafa fyrirtæki að verulegu leyti þegar aðlagað sig að þessu. Svo er spurt um minni aðila og svoleiðis. Þetta eru bara mjög almennar reglur sem þarna er verið að setja sem þeir munu þá líka þurfa að beygja sig undir. En ég tel ekki að hér sé um að ræða mjög íþyngjandi kvaðir á fyrirtæki.