156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:19]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég var einmitt að vandræðast með það hvort það væru bara drykkjarvörur. Ég var aðeins að hafa áhyggjur af sjampóbrúsum og kremum og einhverju slíku líka. Mér fannst það ekki vera nægilega skýrt. En takk fyrir svarið, hæstv. ráðherra. Ég segi nú samt að við þurfum að huga að þessum litlu aðilum. Við höfum mikið velt því fyrir okkur hvernig við getum stutt frekar við alls konar nýsköpun og þróun og það eru mjög margir aðilar að þróa ýmsa hluti og selja kannski í mjög litlu magni. Það getur kannski vel verið að þeir sem eru aftur á móti að framleiða plastbrúsana séu margir búnir að aðlaga sig þessu regluverki, ég þekki það ekki alveg. Þá bara að lokum spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur það farið í taugarnar á honum að drekka úr plastflösku með áföstum tappa? Hefur hæstv. ráðherra skoðað hökkin sem eru á Facebook og annað þar sem er verið að kenna fólki (Forseti hringir.) hvernig það á að opna flösku með áföstum tappa?