hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Nei, þetta hefur ekki farið sérstaklega í taugarnar á mér og hefur einmitt frekar bara orðið tilefni til þess að það hafa orðið til myndbönd, eins og hv. þingmaður nefndi, sem hafa ákveðið skemmtigildi. Af því að hv. þingmaður spurði hér áðan um það hvernig eftirlitinu væri háttað þá er það reyndar svo að það er Umhverfis- og orkustofnun sem fer með eftirlitið og þar hefur því verið háttað þannig að það fer fram stikkprufueftirlit á grundvelli eftirlitsáætlunar og það er gert ráð fyrir að svo verði áfram. Þetta er rakið í greinargerð frumvarpsins.