hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ráðherra segir hér að þetta sé ekki stórmál en engu að síður er þetta eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar, kemur einna fyrst fram. Það hefur líka komið fram að á síðasta kjörtímabili og jafnvel tveimur hafi forveri hans í starfi annaðhvort ekki haft nægan áhuga á að verða sá ráðherra sem kom löggildingu á það plastflöskur væru með fastan tappa eða að samflokksmenn hans í þingflokki Sjálfstæðisflokksins vildu ekki leyfa honum að verða að þessum fræga ráðherra. En hér er kominn hæstv. ráðherra sem telur að þetta sé mjög mikilvægt og eitt af þeim málum sem þurfi að klára hratt og vel og leggur hér fram.
Ég hafði áhuga á að nefna hérna tvennt, annars vegar varðandi eftirlitið sem var aðeins búið að koma inn á. Ég býst við að þarna sé um að ræða markaðseftirlit, þ.e. hverjir setja vöruna á markað en ekki hverjir rífa tappana af eða hverjir verða pirraðir þegar þeir eru búnir að hella yfir sig alla úr kókflöskunni og þurfa að fara heim og skipta um skyrtu vegna þess að tappinn var aðeins skakkur og rífa hann þá af og jafnvel henda honum í ruslið annars staðar. Ég býst við að þetta snúist fyrst og fremst um markaðseftirlit með fyrirtækjunum sem framleiða en ekki eftirlit með neytendunum eða ég vona að það eigi ekki að verða eftirlit með því hvort við rífum tappann af, jafnvel þegar hann hefur rifnað einhverra hluta vegna þess að menn gerðu þetta vitlaust eða vegna þess að menn pirruðu sig á því að þeir sulluðu yfir sig.