hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað rétt hjá hv. þingmanni að hér er það markaðseftirlit sem við erum að tala um, við erum ekki að koma á sérstökum tappalöggum sem munu hafa eftirlit með neytendum, svoleiðis úrræði verða að bíða betri tíma. (Gripið fram í.) Eða bara alls ekki, sleppum því.
Hv. þingmaður talaði um þetta sem sérstakt forgangsmál þessarar ríkisstjórnar. Það gefur auðvitað augaleið að mörg þessara fyrstu mála sem við leggjum hér fram á þingi, fyrir utan bara mjög brýn stefnumarkandi mál sem ný ríkisstjórn vill koma með inn strax, eru líka bara mál sem hafa legið tilbúin í ráðuneyti og er ástæða til að leggja fram strax.
Ég á erfitt með að átta mig á viðkvæmninni gagnvart þessu máli og feimni forvera minna til að flytja það. En ég ætla ekki að drolla meira með þetta mál. Það er bara ósköp sjálfsagt að innleiða þessa gerð í íslensk lög og ekki ætla ég að fara að standa fyrir því að sprengja upp EES-samstarfið vegna áfastra plasttappa. Það er ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Eins og var farið yfir áðan þá hafa fyrirtæki þegar aðlagað sig að þessum breyttu reglum og ég vona bara að þetta renni hér í gegn í þokkalegri sátt og þingmenn geta haldið áfram að láta þessa áföstu tappa fara í taugarnar á sér. Það er besta mál.