156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:26]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er án efa svo að einhverjum hluta mannkyns og líka á Íslandi finnst þetta ekki skemmtileg breyting, ekki frekar en papparör. Hæstv. ráðherra hefur sagt að þetta skipti eiginlega engu máli. Fyrirtækin eru búin að þessu. Hér hefur komið fram að aðeins 6% þessara tappa, sem vissulega eru nokkrar milljónir tappa, fylgi ekki flöskunni en vonandi fara nú flestir í ruslið engu að síður. Með öðrum orðum, þetta er ekki stórkostlegt vandamál. Því þarf að setja lög? Því þarf að banna hluti þegar fyrirtækin eru búin að gera þetta? Því þarf að hafa opinbert eftirlit með því? Hæstv. ríkisstjórnin lagði mikla áherslu á að bókun 35 yrði fyrsta mál á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Myndi það raska því verulega ef Alþingi nýtti nú þá heimild sem talað er um í bókun 35 og setti lög með opin augu sem gengju ekki eins langt vegna þess að það væri engin ástæða til? Það eru engin efnisleg umhverfisleg rök til þess að vera að setja þessar kvaðir á. (Forseti hringir.) Myndi það raska EES-samningnum?