hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr: Til hvers er leikurinn gerður ef þetta eru ekki mjög veigamiklar breytingar að mati þess sem hér stendur? Svarið er einfalt og hv. þingmaður veit það alveg jafn vel og ég að við erum aðili að EES-samningnum. Þetta er mikilvægasti viðskiptasamningur Íslandssögunnar sem veitir íslenskum fyrirtækjum og neytendum aðgang að evrópskum mörkuðum, sem hefur gersamlega stökkbreytt íslensku efnahagslífi. Framsóknarflokkurinn var auðvitað á móti því að gerast aðili að samningnum á sínum tíma. (Gripið fram í.) Ég er nú bara ekkert að skrökva, við getum bara flett upp atkvæðagreiðslunni. En þetta var tímamótasamningur. Þessi ríkisstjórn ætlar að styrkja þennan samning í sessi, styrkja enn frekar samstarf Íslands við EES-ríkin og því fylgir m.a. að við ætlum ekki að draga lappirnar (Forseti hringir.) þegar kemur að innleiðingu umhverfisregluverks. Það kemur ekki til greina.