hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Örfá orð til viðbótar í framhaldi af þessu og aðeins dýpkun á þessari hugmynd minni. Við höfum auðvitað verið að ræða bókun 35 og um hvað hún snýst; hún snýst um það að við þurfum að innleiða hlutina með réttum hætti. Valdið er hins vegar ekki tekið af löggjafarsamkomunni. Við getum sett þau lög, ef við gerum það, með opin augu. Hér er undir mál — það er mat hæstv. ráðherra að það séu ekki veigamikil rök, að það muni ekki breyta mjög miklu umhverfislega. Hér hafa komið fram upplýsingar frá hv. þm. Bergþóri Ólasyni um að 94% tappa fylgi — það verður áhugavert að sjá hvort það hafi orðið breyting eftir að fyrirtækin tóku upp að hafa þá áfasta, hvort það hafi skilað sér í auknum skilum á töppum. Ég hef miklu meiri áhyggjur af allt annars konar plasti sem því miður þvælist í sjóinn og er stórkostlegt vandamál og ég ætla ekki að gera lítið úr því. En hér er verið að gera lífið aðeins flóknara og meira íþyngjandi fyrir þá einstaklinga sem þetta fer í taugarnar á án þess að það virðist skipta öllu máli. Ef fyrirtækin eru á markaðslegum forsendum búin að breyta öllum vélasamsetningum sínum þannig að allar vélar framleiða núna flöskurnar með töppum á, til hvers þarf þá að skylda þau með lögum og setja á opinbert eftirlit? Er þetta ekki bara ein hagræðingartillaga sem væri hægt að leggja hér til til að ríkisstjórnin gæti sparað? Það þyrfti ekki að setja þessa löggjöf, það þyrfti ekki að vera með þetta aukna eftirlit, markaðseftirlit með þessum vörum, eða að vera að fylgjast með þessu? Væri það ekki svolítið áhugavert fyrir vegferðina um bókun 35 ef við segðum: Ja, við ætlum að setja önnur lög þar sem öll fyrirtæki á Íslandi eru búin að uppfylla þessi skilyrði? Þetta liggur allt fyrir. Það þarf ekki að setja einhver íþyngjandi lög og eftirlit með fyrirtækjum vegna þess að það er búið að því. Þarf að setja lög um allt sem við gerum ef það er einfaldlega þannig að það er búið að uppfylla það sem við erum að sækjast eftir, þ.e. að minnka plastmengun hvað varðar lausa eða áfasta plasttappa sem eiga það nú til að losna? Alla vega er það mín reynsla. Væri það vegferð sem hæstv. ráðherra gæti hugsað sér, og ríkisstjórnin, til að sýna fram á að löggjafinn hafi þetta sjálfstæði, að setja lög sem myndu ekki kollvarpa Evrópuregluverkinu vegna þess að við værum að uppfylla þau hvort eð er, við þyrftum bara ekki að setja lög til þess? Við segðum bara: Þetta er svona, við getum bara hent þessari innleiðingu, bara til að sýna fram á að bókun 35 stenst, þar sem við erum að segja að löggjafinn sé sjálfstæður og geti sett þau lög sem hann vill. Er það ekki bara ágætt að gera það í þessu þar sem engir hagsmunir eru undir, eða litlir, svo ég fari nú rétt með? Væri það ekki bara ágætisleið til þess að sýna fram á að við getum sett þau lög sem við viljum ef það er vilji landsmanna? Væri það ekki áhugaverð leið?
Síðan langar mig kannski bara til að segja að hér hefur verið rætt um að gera lífið leiðinlegra og ekki skal dregið úr því að þegar við setjum lög sem gera lífið leiðinlegra þá hefur það áhrif í samfélaginu. Fólk verður bæði leitt og pirrað að óþörfu. Þetta eru litlu málin en þau skipta einfaldlega máli. Ef það er svo að hér séu veigalitlir umhverfislegir hagsmunir undir, af hverju er þá verið að gera lífið erfiðara, leiðinlegra, flóknara? Af hverju teljum við að þetta sé nauðsynleg innleiðing ef við hefðum komist upp með að gera hana ekki en öll fyrirtækin eru búin að taka upp þessa framkvæmd? Af hverju erum við þá að setja lög um það? Erum við ekki bara að fara aðeins fram úr okkur? Væri ekki svolítið spennandi að segja: Já, já, við virðum EES-samninginn í botn, hann er mjög mikilvægur? Og ég tek undir það, ég held að það sé einhver besti samningur sem við höfum gert og hann hefur skilað okkur gríðarleg efnahagslegum ávinningi. Ég hef líka haldið hér ræðu um bókun 35 og tel að hún sé ekki hættuleg í sjálfu sér, enda segjum við að við getum sett þau lög sem við viljum hér í þinginu. Hér gætum við sýnt fram á það, þar sem við myndum ekki á nokkurn hátt raska því verki og verklagi sem er viðhaft og krafist er af Evrópusambandinu, sem á það til að gera lífið leiðinlegra fyrir alla íbúa Evrópu, og ekki bara leiðinlegra heldur meira íþyngjandi, getur dregið úr nýsköpun, dregið úr hagvexti. Og við þekkjum það að sú vegferð sem ný ríkisstjórn virðist ætla að fara, að draga okkur inn í undirbúning að aðildarviðræðum með þjóðaratkvæðagreiðslu eftir tvö ár — þá er mikilvægt að nota hvert tækifæri hér í þessari pontu og fara yfir það hvar Evrópa er stödd. Þær skýrslur, sem birtust hér síðastliðið sumar, eftir tvo þungavigtarmenn í Evrópu, lýstu báðir þeirri vegferð sem Evrópa hefur verið á. Í báðum skýrslum kemur fram að dagsetningin, þegar vandræðin hófust, var þegar Evrópa tók upp evruna. En í báðum skýrslum forðuðust þessir ágætu heiðursmenn að minnast á að það væri nákvæmlega þannig. En það er áhugavert að lesa skýrslurnar og sjá að það er akkúrat dagsetningin, þegar evran var tekin upp. Þá byrjuðu vandræðin í Evrópu. Fyrir utan, eigum við ekki bara að segja mjög oft of íþyngjandi regluverk, óþarfaregluverk, þar sem markaðurinn er búinn að leysa þetta, eins og í þessu tilviki, þar sem öll fyrirtækin sem selja hér flöskur með áföstum töppum eru búin að endurnýja vélar sínar. Munu þau fara aftur í hitt af því að regluverkið er ekki fyrir hendi? Mér finnst það ólíklegt. Það er óþarfakostnaður. Ég held að það sé líklegt að þau muni halda áfram að framleiða þessa áföstu tappa alveg óháð því hvort við setjum þessa löggjöf hér.
Evrópa er ekki á góðri leið, hún er stöðnuð. Hún hefur sett mjög flóknar reglur í kringum gervigreind. Mælikvarðinn er sá að ef við myndum segja Bandaríkin, meira að segja Trump-Bandaríkin, séu á þeirri vegferð að nota gervigreindina á skalanum 100 þá erum við á Íslandi í einhverjum 10, 20, 30. Við erum alla vega að reyna og höfum verið að ýta undir það, á meðan Evrópa er svona að dinglast í kringum 1, 2, 3 og jafnvel í mínus vegna þess að þeir hafa sett svo flókið regluverk að menn treysta sér ekki til að nýta sér gervigreindina sér til hagsbóta, sem er kannski stærsti drifkrafturinn í hagvexti nútímans, fyrir utan síðan þá staðreynd að evran er að valda talsverðum vandræðum í milliríkjaviðskiptum innan Evrópu. Þeir vextir sem birtast þar í einstökum löndum eru auðvitað háðir stöðu hvers ríkissjóðs og hvers lands fyrir sig en ekki einhverjum meðalvöxtum Seðlabanka Evrópu, sem stundum er fjallað um hér í þessum sal.
Nú veit ég að þetta tengist ekki nákvæmlega plasttöppum en þetta er samt sem áður spurningin: Þorum við að setja okkar eigin löggjöf um eitthvað sem, að því er virðist og hæstv. ráðherra sagði að væru veigalitlir hagsmunir, skiptir litlu máli? Væri þá ekki ágætt í þessu tilviki að sýna fram á það að kerfið, bókun 35 hin nýja, virki og við getum bara sett þau lög sem okkur sýnist af því að við teljum okkur vera að uppfylla alla umhverfislega þætti með því sem nú þegar hefur orðið? Ég held að þetta sé eitthvað sem við mættum alveg íhuga í þessum sal.
Frumvarpið lætur lítið yfir sér, er búið að vera lengi á leiðinni inn í þennan sal en kemur núna hjá nýrri ríkisstjórn, er sett hér á dagskrá síðasta daginn fyrir kjördæmaviku í 2. þingviku. Við hljótum að líta svo á að það sé áherslumál. Það hefði mátt bíða fram í mars. Það er búið að bíða í nokkur ár. En það er greinilegt að ríkisstjórnin telur að það sé mikilvægt að koma þessu máli fram hér í dag áður en að þing tekur sér vikupásu og þingmenn eiga möguleika á að heimsækja kjördæmin sín.
Ég ætla ekki að fara ítarlega í efnisgreinarnar sjálfar. Þær lýsa sér nokkuð sjálfar hver fyrir sig. En auðvitað má velta fyrir sér að við erum fyrst og fremst að tala um plasttappa á drykkjarvöru en það eru auðvitað plasttappar á alls konar öðrum vörum sem eru ekki áfastir og verða það sjálfsagt ekki; þeir geta auðvitað líka endað í hafinu í ekki minna mæli en þessir. Það væri kannski gáfulegra af hálfu ríkisstjórnarinnar að koma fram með skýra lýðheilsustefnu um það hvort við Íslendingar séum að drekka of mikið af gosdrykkjum, sykruðum gosdrykkjum og öðrum þeim drykkjum. Ég hef áhyggjur af því að það sé miklu stærra mál. Það væri dýrmætara áherslumál er varðaði lýðheilsu og heilbrigðismál okkar þjóðar frekar en það hvort hér verði sem skjótast lögfest bann við því að vera með lausa plasttappa á drykkjarvöruflöskum.