hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég kem hingað upp vegna þess að hv. þingmaður beindi ákveðnum athugasemdum eða spurningum til mín og veltir fyrir sér hvort hér sé hægt að búa til einhvers konar prófmál eða að Ísland gæti, þegar kemur að áföstum plasttöppum, notað tækifærið til að sýna sjálfstæði sitt gagnvart Evrópusambandinu. Það er nú bara þannig að þetta mál var tekið upp og samþykkt í sameiginlegu EES-nefndinni á vakt fyrri ríkisstjórnar og það hefur alltaf staðið til að innleiða þetta regluverk. Ný ríkisstjórn ætlar ekkert að drolla við það vegna þess að það geti skapað einhverja óþægilega umræðu eða farið í taugarnar á einhverjum. Það kemur ekki til greina.
Ég vara við því að að tala af þessari léttúð um Ísland og samstarfsríkin okkar innan EES, að fara að nota eitthvert svona mál sem einhvers konar yfirlýsingu um sjálfstæði okkar. Ég held að við ættum miklu frekar að gera það þegar raunverulega reynir á hagsmuni Íslands í stórum málum þar sem skiptir máli að Ísland fái undanþágu og fyrirvara frá innleiðingu einhvers regluverks.
Hér er, eins og ég nefndi, búið að afgreiða þetta mál í sameiginlegu EES-nefndinni. Ég veit ekki til þess að sú ríkisstjórn sem hv. þingmaður sat í þá hafi gert neinar athugasemdir eða sett neinn fyrirvara við þetta mál og mér finnst hálfódýrt ef við ættum svo að fara koma svona eftir á og gera þetta að einhverjum voðalegum prófsteini á sjálfstæði og fullveldi Íslands gagnvart samstarfsþjóðum okkar. (Forseti hringir.) Ég hafna þessari hugmynd að einhvers konar tilraunastarfsemi sem mun eingöngu (Forseti hringir.) skila sér í því að ESA gæti höfðað samningsbrotamál á hendur Íslandi vegna áfastra tappa (Forseti hringir.) og vegna reglna sem fyrirtæki hafa nú þegar lagað sig að.