hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Nú má hæstv. ráðherra ekki misskilja mig. Það er auðvitað þannig að ég er algerlega sammála því að við eigum að beita öllum ráðum þegar hagsmunir okkar skarast við regluverk Evrópusambandsins. Við eigum bæði að leita eftir því að geta gert breytingar í vinnunni sjálfri — eins og við getum gert innan þess samstarfs sem við höfum verið í; við höfum auðvitað margoft tekið þann slag en mættum örugglega hafa gert það oftar og verið betur á vaktinni þegar slíkt er — eða þá að sækja um undanþágur þegar við getum sýnt fram á mjög neikvæðar afleiðingar fyrir Ísland. Ég get t.d. nefnt regluverkið um loftslagsmál, er varðar flug til Íslands, þar sem það var augljóst að hagsmunir Íslands voru fyrir borð bornir í regluverki Evrópu, enda snýst það regluverk oft og tíðum um það að menn búa þar þétt í nágrenni hver við annan en ekki með 500–600 km á milli eins og við hér eða lengra jafnvel.
Þegar hæstv. ráðherra segir að hann vari við því að við förum þessa leið þá gæti ég snúið þessu við. Ég vildi líka vara ríkisstjórnina við að ganga of langt, eins og ég hafði tilfinningu fyrir, með því að vera að setja bókun 35 og nokkur mál er varða tollamál á dagskrá á næstu vikum og mánuðum, sem mér sýnist vera gert til þess að ganga í augun á Evrópusambandinu; þar er verið að veikja eða ganga gegn íslenskum hagsmunum til þess að ríkisstjórnin sé nú ekki að styggja Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Það var þess vegna sem ég spurði: Væri þetta kannski góð leið til að sýna fram á að við getum sett lög (Forseti hringir.) af því að það er búið að innleiða verklagið á markaðnum? (Forseti hringir.) Væri það góð leið að gera þetta, bara til að sýna fólki fram á að bókun 35 er ekki svo hættuleg, eins og margir halda?
(Forseti (BHar): Forseti minnir bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)