156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:48]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég kom aðeins inn á þetta í ræðunni. Það kom fram hér í andsvörum að hæstv. ráðherra, og það birtist heldur ekki í greinargerðinni, var upplýstur eða vissi til þess hver staðan var. Það var hv. þm. Bergþór Ólason sem hafði kannað hjá Endurvinnslunni að það væru um 6% tappa sem skiluðu sér ekki á flöskunum; auðvitað veit enginn hversu margir af þeim skila sér í ruslið með réttum hætti. Ég vona svo sannarlega að þeir fari ekki allir til hafs.

En það er rétt, sem hv. þingmaður nefnir hér, og það var kannski það sem ég var líka að vekja athygli á, að hér kemur mál frá ríkisstjórninni í lok 2. viku þingsins, það er þá einhvers konar áherslumál að koma því á dagskrá hér áður en við förum í kjördæmaviku, og spurningin er einmitt þessi: Hvert er umfangið miðað við annað plast sem veldur okkur verulegum áhyggjum í hafinu? Hefði ekki verið mikilvægara að koma með löggjöf um það, sérstaklega í ljósi þess að hæstv. ráðherra sagði að hér væru ekki miklir hagsmunir undir og upplýsti okkur um að öll fyrirtækin væru komin á þennan stað.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem situr nú á forsetastóli, spurði hæstv. ráðherra hvort þetta myndi hugsanlega hafa áhrif á minni framleiðendur. Það gerir það örugglega á yfirgangstímanum, á meðan menn eiga einhver ílát með skrúfuðum töppum, sem eru ekki áfastir, og eru að nýta sér þau eða eitthvað slíkt og það getur haft áhrif í litlum fyrirtækjum. Ekkert af þessu kemur fram í greinargerðinni. Það er greinilega ekki búið að undirbyggja hvaða mikilsverðu hagsmuni er verið að tiltaka hér sem myndi þá hugsanlega skýra og hjálpa okkur til að skilja af hverju ríkisstjórnin leggur áherslu á að koma með þetta mál svona snemma inn.