156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:50]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo er atriði sem mér finnst alltaf hollt að velta upp, í hvaða löggjöf sem er, og það eru hinar óvæntu neikvæðu afleiðingar. Hverjar gætu þær mögulega verið af þessu máli? Það var nefnt hér í umræðum um framsögu hæstv. ráðherra, og því spáð, að menn í einhvers konar andófi gegn fyrirbærinu áföstum töppum færu í stórum stíl að slíta tappana af — og ég er nú svo sem sek um það sjálf og fleiri sem ég þekki.

Ég vek líka athygli á því að það ákvæði sem hér er lagt til á ekki að taka til bolla og glasa fyrir drykkjarvörur eða drykkjaríláta úr gleri. Ég velti því fyrir mér, af því að nýsköpun bar nú líka á góma, að það gæti auðvitað verið nýsköpunartækifæri að fara að framleiða gosflöskur, eða a.m.k. ávaxtasafa, með áföstum bolla en ekki tappa. Ég vildi spyrja hv. þingmann hvort honum fyndist í þessari greinargerð nægilegar vangaveltur um hverjar óvæntar afleiðingar gætu verið af svona þvinguðum aðgerðum við framleiðslu eins og hér er verið að leggja til.