hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það er nú mjög oft þannig að meira að segja í litlu málunum þá veit enginn nákvæmlega hvaða afleiðingar það hefur. Hér hefur verið nefnt hvaða áhrif þetta gæti t.d. haft á smáframleiðendur sem væru að framleiða eitthvað lítið og hefðu átt einhvern smálager af flöskum með lausum tappa; það mundi þýða að það þyrfti að henda því út. Hjá litlum framleiðendum getur svona vöruumbúðalager skipt miklu máli, að menn fái ekki svigrúm til að nýta hann áður en þeir kaupa nýjar vöruumbúðir. Og svo þegar menn setja regluverk, þegar einhver maður á skrifstofu fær þá frábæru hugmynd að setja verði löggjöf um að allir tappar verði að vera fastir, þá hefur viðkomandi ekkert hugsað út í það hvernig samfélagið bregst við á ólíkum og fyrir fram óhugsuðum vígstöðvum. Ég held hins vegar að það kerfi sem við höfum haft, skilagjaldið og endurvinnslan, hafi skilað miklu og ef það eru 55 milljónir flaskna sem skila sér í endurvinnslu og 6% af þeim eru tappalausar þá er það býsna góður árangur.