156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:53]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hér er ekki um stórt mál að ræða. Þetta er lítið mál og þetta er umhverfismál og það kemur vissulega á óvart hve mikil umræða er um það, en þó fremur hve umræðan er neikvæð; að menn skuli vera í svona neikvæðri umræðu um mál sem þegar er búið að leysa. Það kemur sérstaklega á óvart að þessi neikvæðni komi frá fyrrverandi umhverfisráðherra, að tala jafnvel um að þetta sé íþyngjandi og telja upp allar mögulegar og ómögulegar afleiðingar. Það kemur á óvart að Framsóknarflokkurinn skuli vera með þessi skilaboð út í samfélagið, þetta neikvæða tal um umhverfismál, þegar það er ljóst, frú forseti, að umhverfismálin skila fyrirtækjunum alla jafna ágóða, hreinna samfélagi.

Við erum að tala um jákvætt mál. Hvernig geta þingmenn komið hér upp og verið svona neikvæðir í garð örlítilla tappa sem eru áfastir á flöskum? Ég spyr, hæstv. forseti: Er ekki kominn tími til þess að skoða þetta litla mál í jákvæðara ljósi? Ég vona nú að hv. formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, komi hér í andsvör með örlitla tölu um það hvað er jákvætt í umhverfismálunum.