156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[11:55]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir þetta innlegg og andsvar, sem segir mér að hann vilji í raun og veru ekki ræða það sem ég var að leggja hér inn í inngangi minnar ræðu. Umhverfismál eru gríðarlega mikilvæg og allur ávinningur okkar í umhverfismálum er ekki bara mikilvægur, hann er nauðsynlegur. Og það að minnka plast í hafinu er eitthvert stærsta verkefnið sem við höfum farið í og sett fullt af púðri í. Það sem ég var bara að benda á er að hér er mál sem markaðurinn er búinn að leysa. Af hverju erum við þá að setja einhverja íþyngjandi löggjöf um það? Af hverju notum við ekki tækifærið, af því að við höfum líka verið að fjalla um bókun 35, af hverju sýnum við bara ekki fram á að á Íslandi þarf ekki að setja þessar reglur? Við erum búin að uppfylla þessa leið. Leyfum fyrirtækjum að klára það sem þau eiga í litlu framleiðslunum sínum, ef það er þannig, ég þekki það bara ekki og það er ekkert fjallað um það í þessu frumvarpi enda litlir hagsmunir undir að sögn. Þeir hljóta líka að vera litlir hvað varðar umhverfislegan ávinning því að hann er miklu stærri í mörgum öðrum plastmálum. Ég veit að hv. þingmaður er sammála mér um það og það er mikilvægt að við tökum höndum saman á því sviði. Þess vegna segi ég einfaldlega: Af hverju er verið að koma með þetta mál hingað inn í þessum asa? Af hverju er þetta áherslumál ríkisstjórnarinnar? Af hverju tökum við ekki bara umræðuna af því að málið varðar kannski ekki stóra hagsmuni? Af hverju tökum við þá ekki bara umræðuna um það? Þarf alltaf að setja lög og reglur um allan andskotann? — Afsakið, frú forseti. Þarf þess? Getum við ekki bara treyst á skynsemi fólks? Í þessu tilviki er markaðurinn búinn að leysa þetta með því að skipta út öllum vélbúnaði, alla vega hér á Íslandi, og eitthvað slíkt.