hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég vil nú fagna því að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson skuli sjá það jákvæða í umhverfismálunum. Jafnvel í þessu máli mátti heyra að hann teldi að þessir tappar væru nú kannski ekki til mikilla trafala. En aftur að þeirri athugasemd sem kom fram; auðvitað er mögulega rétt að skoða það hvort ekki þurfi einfaldlega að setja almennt ákvæði í lögin til þess að hægt sé að innleiða þessar reglur um tappa og önnur smáræðismál í reglugerð. Það má vera að það sé rétt leið og ég vil benda hæstv. ráðherra á að taka þá athugasemd til greina.
En aftur að Evrópusambandinu. Það er nú einu sinni svo að það hefur skilað gríðarlega miklum ávinningi, sérstaklega í Austur-Evrópu, í umhverfismálum og að tala um það eins og það sé bara eins og einhver verkur í öllu gangvirki lífsins hér á Íslandi eða í Evrópu (Forseti hringir.) er bara ekki rétt, sérstaklega ekki í umhverfismálunum. Og það geta þeir vitnað um (Forseti hringir.) sem hafa farið austur fyrir járntjaldið þegar kommúnisminn réði þar ríkjum (Forseti hringir.) og síðan skoðað umhverfismálin nú þegar Evrópusambandið (Forseti hringir.) hefur tekið við málaflokknum.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)