hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég var fyrst og fremst að fjalla um efnahagsmál í Evrópusambandinu. Ég ætla ekki að bera saman stöðu umhverfismála á Íslandi og í Austur-Evrópu. Ég ætla bara að taka undir með hv. þingmanni að sameiginlegt regluverk Evrópu er nauðsynlegt í Evrópu þar sem ár renna jú í gegnum fjölmörg lönd og ef menn kæmust upp með að henda menguninni sinni út í ána sín megin þá endar mengunin jú í öðrum löndum. Því er auðvitað ekki að heilsa hér á Íslandi og við erum bara á allt öðrum stað þó að við getum vissulega gert betur á mörgum sviðum. Hér hefur ítrekað verið nefnt plast í hafi og sú plastmengun sem þar er. Margir hafa staðið sig frábærlega í að hreinsa strendur landsins og náð ótrúlegum árangri en því miður er í hvert sinn alveg ótrúlegt magn sem kemur þar fram þó að vísbendingar séu um að það fari skánandi.
Ég var ekki að tala niður til Evrópusambandsins sem slíks. Ég var bara að segja að efnahagslega er það ekki gott að sækjast eftir því að vera í félagsskap með því.