hollustuhættir og mengunarvarnir.
Forseti. Þetta plasttappamál er ekkert endilega lítið mál því að í raun er það svona ákveðið prinsipp; svona reglur eins og það að festa tappa á flösku, það traðkar á skynsemi fólks. Fólk sættir sig ekki við að tapparnir séu á flöskunum vegna þess að þeir eru til það mikils ama að það veldur ákveðinni líðan hjá mjög mörgum; ég held að ef við færum í þjóðaratkvæðagreiðslu um tappana yrði tappalöggjöfin felld með miklum meiri hluta atkvæða. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Reglur sem gera meira ógagn en gagn virka þannig að fólk mun reyna að brjóta þær. Og ég er nokkuð viss um mannlegt eðli; þegar fólk upplifir að það sé mögulega beitt rangindum þá reynir það að svara því með ákveðinni mótþróaþrjóskuröskun. Síðan er það allt þetta tal um að hér sé talað neikvætt — það er náttúrlega í bara eyrum þess sem hlustar hversu mikil gildishleðslan er. Það er alveg hægt að skilgreina það hvað er neikvætt og hvað er jákvætt; í eyrum eins getur eitthvað verið neikvætt og í eyrum annarra jákvætt. Þetta mál er ekkert lítið mál og ég ætla aðeins að reifa það hér.
Þið þekkið það nú líklegast flest sem hafið drukkið úr plastflöskum með áföstum töppum að það reis upp mikil óánægjubylgja í samfélaginu og er enn rísandi. Tapparnir flækjast verulega fyrir þegar drukkið er úr litlum flöskum. Þetta á sérstaklega við um holla drykki í fernum, skyrdrykki, en við viljum auka neysluna á þeim en ekki minnka hana. Það er í raun nánast ómögulegt, ef maður fær sér svona lítinn skyrdrykk, 250 ml, að drekka úr þeirri flösku án þess að sulla yfir sig allan. Þarna kallar skynsemin á að rífa tappann af og ekki bara það; áður en tappinn varð áfastur skrúfaði maður tappann kannski aftur á eftir að hafa drukkið drykkinn, en eftir að þetta er orðið þannig að maður þarf að beita ákveðnu afli til að taka tappann af þá er maður mun líklegri til að kasta tappanum frá sér og þá vinna þessar reglur gegn sér. Og það er bara í alvörunni þannig. Tapparnir rekast í varir, nef eða andlit þegar flaskan er borin upp að munninum, þetta er alveg þekkt, og það er ekkert alltaf mýkt í plastinu til að hægt sé að ýta tappanum niður. Þetta er óþægilegt og letur börn, sérstaklega með þessar minni pakkningar, í því að drekka holla skyrdrykki sem eru fullir af prótínum en með lítið af kolvetnum. Það gerist líka stundum að þegar flaskan er kreist, þegar hellt er úr henni, þá getur tappinn — ef maður beygir tappann niður þá er ekkert endilega víst að hann haldist þar — skotist inn í bununa; þegar maður er í miðri bunu að hella úr flösku eða að drekka getur tappinn skotist inn í bununa. Þetta þekkja allir. (Gripið fram í.)Þetta er jafnvel spaugilegt en þetta þekkja allir. Þetta hefur eyðilagt heilu veislurnar; fólk sem kemur prúðbúið í veislur er orðið útatað í alls konar drykkjum úr plastflöskum með áföstum töppum. Þetta er því aðeins dýpra en kom kannski fram í framsögu hæstv. ráðherra.
Einstaklingsnotkunin verður minni af því að fólk fær sér mögulega minna af drykkjum. Það gæti vissulega verið ákveðið lýðheilsumál í jákvæða átt ef fólk drekkur sykraða drykki, að minnka neyslu á þeim, og líka út af aspartam sem er þá sætuefnið í sætum gosdrykkjum og sætuefni almennt í mat. Og þá er ég nokkuð viss um að áfastir plasttappar hafa dregið úr hagnaði fyrirtækja sem selja þessa vöru.
Ég var í Bandaríkjunum rétt fyrir kosningar. Þar búa nú nokkur hundruð milljónir og þar var enginn áfastur plasttappi. Það var svolítið eins og að komast inn í súrefnistjald að komast í umhverfi þar sem maður gat bara fengið flöskuna sína, skrúfað tappann af og drukkið í friði fyrir tappa sem alltaf skýst upp. Þetta getur líka valdið áverkum því að plastið er oft hvasst og það rispar og það er ekki gott. Það gæti þá aukið möguleikana á þyngri umferð á Landspítalanum.
Það hefur verið, held ég, sýnt fram á að það er lélegri innsiglun á flöskunum eftir þessa aðgerð. Fyrirtæki hafa prófað það og innsiglið er lélegra og það er líklegra að flaskan leki. Það er þá neikvæður þáttur í þessum fasa. Svo er annað sem ég held að flestir kannist við, þ.e. að þegar maður er búinn að fá sér sopa og ætlar að skrúfa tappann á þá liggur hann mjög oft skakkt við skrúfganginn og því er ekki hægt að skrúfa hann á. Það varðar lýðheilsu því að það augnablik eða sú mínúta sem það tekur að skrúfa tappann á minnkar lífsviljann hjá manni, alla vega um stund, því að þetta er algerlega óþolandi. Þetta hefur gerst. Ég reyndi að skrúfa tappa með offorsi á flösku og náði ekki alveg að skrúfa hann á, ég hélt að tappinn væri á og ég setti hana ofan í töskuna mína og dótið í töskunni eyðilagðist.
Frú forseti. Sumar gerðir áfastra plasttappa þurfa meira plast vegna þess að tengið við innsiglið — það er lítíð en þegar við erum að tala um milljónir tappa þá vigtar þetta tengi ákveðið mikið og samanlagt er þetta töluvert magn þegar verið er að tala um milljónir plasttappa. Áfastir plasttappar leysa ekki heldur sjálfkrafa þann vanda sem reglurnar voru settar til að leysa, þ.e. tappinn endar ekki endilega á flöskunni eins og ég hef áður dregið í efa. Þeir enda mögulega í rusli ef fólk endurvinnur ekki rétt. Þetta getur líka valdið ákveðnum misskilningi. Þú ert kannski með Tetra Pak-umbúðir sem eru búnar til úr pappa og áli og svo ertu með plasttappa á; hvert á að henda tappanum? Á tappinn að fara með pappanum eða á hann að fara í plastið? Þarf maður að rífa tappann af og skera síðan innsiglið af? Það er ekkert létt að gera það, maður þarf beittan hníf til að ná utan um innsiglið því að það er mjög þétt um hálsinn á stútnum. Það er líka ákveðin áhættuhegðun í því að þurfa að vera með beitt eggvopn til að skera innsiglið af ef maður ætlar að flokka þetta alveg rétt; reglan virðist einhvern veginn koma þeirri hugsun að hjá okkur að við eigum að vera svo góð og gera þetta svo rétt að það er líklegt að hún ýti undir þá hegðun að menn reyni að skera innsiglið af.
Ég veit ekki hvort tekið er tillit til þess að hópar í samfélaginu eru misgóðir í að eiga við þessa áföstu plasttappa. Börn eiga mjög erfitt með að skrúfa tappann af og á þegar þau eru að fá sér mjólk. Það þyrfti að finna upp einhvers konar tækni þannig að, ef þetta fer í gegn, hægt væri að hafa eins konar franskan rennilás á fernunni og tappanum, þannig að tappinn héldist á þeim stað þegar fernan er opnaður. Eldra fólk með gigt eða hreyfihömlun — ég hef margoft heyrt að það á í erfiðleikum með að toga tappann til hliðar og halda honum á þeim stað. Þetta getur þá líka valdið ofþornun hjá eldra fólki, það er síður líklegt til að drekka drykki þegar við erum komin á þennan stað. Og svo er það þetta sem ég nefndi áðan, þessi óþægilega staða tappans; það grípur mann stundum pirringur og reiði þegar maður er að reyna að losa tappann af og þá er innsiglið orðið skakkt og það kostar oft pirring og ákveðin leiðindi. Síðan er það það sem ég hef sagt áður, að í mótþróaþrjóskuröskun rífa menn tappann oft af. Ég hef séð fullorðna karlmenn reiðast og kasta tappanum frá sér. Og sá tappi fer ekki í endurvinnslu, hann endar bara í almennu sorpi eða úti á víðavangi og fýkur síðan mögulega til sjávar.
Endurvinnslufyrirtæki gætu þurft að endurhanna sína ferla út af þessu, það er möguleiki, og það er þá aukinn kostnaður. Og auðvitað þarf að fylgja þessu fræðsluefni því að þetta er þannig mál að þrátt fyrir að þetta hafi verið við lýði hér í svolítinn tíma þá sanna dæmin að þetta er ekkert einfalt mál. Kolsýrðir drykkir, þ.e. drykkir með koltvísýringi, þ.e. koltvísýringurinn sem við erum að dæla niður í berggrunninn og búa til berg — þetta ættu að heita koltvísýrðir drykkir ef efnafræðilega væri farið rétt með það. En fastir tappar minnka innsiglisgetu flasknanna og því er varan oftar ónýt — það er aukinn þrýstingur í flöskunni vegna þess að þar verður ákveðin leysni lofttegunda, koltvísýringur losnar úr vökvanum sem er venjulega að mestu leyti vatn, og leitar út og skapar þrýsting og ef tappinn heldur ekki nógu vel þá tapar drykkurinn þeim gæðum sem leitað er eftir. Það hefur komið fram að fyrirtæki erlendis hafa fengið skammir fyrir það frá neytendum að drykkirnir hafi versnað af því að þeir eru flatir í flöskunum og það er ekki gott. Menn vilja fá sína drykki í sem bestu standi. Framleiðslufyrirtækin þurftu að breyta flöskuhálsum til að það hentaði nýju tappahönnuninni. Þetta er vissulega einskiptiskostnaður en þetta kostaði sitt á sínum tíma; ný mót og tæki, þetta kostar milljónir. Og eins varðandi dreifinguna, því að það er aðeins aukið rúmmál við það að hafa meira plast í töppunum og þetta passar mögulega ekki eins vel í kassa. Þetta endar auðvitað allt á neytendum, aukinn kostnaður. Fyrirtækin vilja sinn arð og þetta endar þá á neytendum. Mikið er kvartað yfir þessu á samfélagsmiðlum, sem eru nú oft eini vettvangur almennings til að kvarta. Almenningur er ekki í sömu forréttindastöðu og ég hér í sal Alþingis að láta mig þetta mál varða. En þetta skiptir máli og ef neytendur eru ósáttir þá hægir á hagkerfinu og það þýðir mögulega samdrátt sem gæti táknað atvinnuleysi. — Þegar skoðað er djúpt í þennan poka þá liggur mögulega fleira undir steini en menn héldu í fyrstu.