hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég get eiginlega tekið undir flestallt sem hann nefndi. En mig langaði að spyrja hann hvort hann telji, í ljósi þess að nú berast fréttir af því að Bandaríkjamenn hugsi sér að hætta við þetta, eða það er búið að gefa út tilskipun um að þetta verði ekki tekið upp í Bandaríkjunum, að þeir muni ekki gera þetta að lögum, telur þingmaðurinn að þetta sé birtingarmynd þess reglugerðafargans sem Evrópusambandið er að drepa sjálft sig með? Það eru þessir litlu hlutir eins og þetta. Getur verið að við ættum að reyna að bíða með þetta frumvarp og sjá hvort Evrópa sjái að sér eins og Bandaríkin?