156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[12:17]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka þingmanni fyrir þessar spurningar sem hún beinir til mín. Já, ég er nokkuð viss um að þetta mál, eins og ég sagði áðan, trampar á skynsemi venjulegs fólks. Fólk upplifir að þarna séu einhverjir í háum stöðum sem fái há laun og séu að skrifa einhverjar reglur af því að þeir hafi ekkert annað að gera. Kannski er Evrópusambandið þannig, þungt. Við sjáum það bara hvernig staðan í gervigreindarmálum er og öðrum málum í kringum Evrópusambandið að það er langt á eftir Bandaríkjunum og Asíu þar. Og svo er það held ég bara þannig að bandarískur almenningur, hvað sem má segja um hann, lætur ekki bjóða sér hluti sem skila augljóslega ákveðnu ógagni frekar en gagni. Þannig að já, ég held að Bandaríkjamenn muni ekki innleiða þetta einfaldlega vegna þess að það er ekkert gagn af innleiðingunni sem slíkri. Ég er nokkuð viss um ef við værum með tvö sambærileg lönd eða samhliða raunveruleika; annar væri Ísland, sem væri með áfasta tappa, og hitt væri Ísland með lausa tappa, og við myndum mæla lífsgleði og þjóðaránægju, þá myndi lífsgleði Íslands með lausa tappa mælast miklu hærri og umhverfið þar væri hreinna vegna þess að fólk almennt er mun líklegra til að skrúfa tappann á ef það er sátt við þá vöru sem það er búið að kaupa. Og það er líklegra til að slíta hann af þegar það er ákveðinn pirringur sem blossar fram þegar maður er kannski búinn að sulla yfir sig hálfum lítra af Pepsi Max.