156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[12:19]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni greinargott svar. Mig langaði að fá að spyrja núna í seinni umferð tveggja spurninga að því er varðar mat á áhrifum á þessu máli. Hér stendur: „Samfélagslegur ávinningur er ótvíræður með minni plastmengun, bættu umhverfi og betri lýðheilsu.“ Fyrsta spurningin er: Þegar sagt er betri lýðheilsu, heldurðu að það sé af því að fólk nenni ekki lengur að drekka úr þessum flöskum, þess vegna batni lýðheilsan, eða hvað heldurðu að hér sé átt við? Og einnig vil ég spyrja: Það er líka sagt: „Ekki eru taldar líkur á að lagasetningin hafi áhrif á stöðu eða jafnrétti kynjanna.“ Ég bara átta mig ekki alveg á hvernig það hefði átt að hafa áhrif á jafnrétti kynjanna. Er það erfiðara fyrir konur eða er það auðveldara fyrir konur? Þeir telja alla vega að svo sé ekki. En að hvaða leyti hefði þetta mál getað haft áhrif á jafnrétti kynjanna?