156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[12:20]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu spurningu. Í þessu hefði ég ekki talað um jafnrétti kynjanna, ég hefði bara talað um jafnrétti fólks vegna þess að ég minntist á það áðan að það eru ákveðnir hópar sem eiga í erfiðleikum með tappana, þeir áttu í erfiðleikum með að skrúfa hefðbundna tappa af. Það kostaði ákveðinn kraft að rjúfa innsiglið, þú þarft að slíta ákveðna plastþræði, 12, 15 þræði í hverju innsigli. En þarna til viðbótar er þannig komið að við erum með þetta tengi á milli tappans og innsiglisins. Í gömlu flöskunum þar sem tappinn er laus þá snýr maður tappann af, hann losnar frá innsiglinu en með nýju flöskunum þá snýr maður tappann af en af því að við erum með tappa fastan við innsiglið þá snýst innsiglið með. Það þýðir að það er aukið viðnám við flöskuhálsinn, töluvert aukið viðnám. Það er alla vega, myndi ég halda, 20, 30 N [Hlátur í þingsal.] og það getur skipt máli hjá fólki sem er kannski að einhverju leyti fatlað eða börn. Þess vegna fyndist mér réttara að tala um að þetta væri ákveðið jafnréttismál, að vera ekki með áfastan tappa. Þannig að þetta getur alveg haft áhrif með þessu eins og staðan er núna.