hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu umræðu og þakka fyrir gott innlegg hv. þm. Jóns Péturs Zimsens. Ég hef farið svona fram og aftur í þessu tappamáli og bæði verið með og á móti og ég spyr mig: Þurfa alltaf að vera tappar? Getum við í framtíðinni, hugsanlega með gervigreind sem hefur verið minnst á hérna, fundið leiðir til að eiga tappalaust líf sem væri sem sagt fullt af hamingju og væri laust við þessa áþján? Varðandi muninn á Evrópu og Bandaríkjunum þá þarf maður sérstaka menntun til að opna suma tappa í Bandaríkjunum, þau þekkja það sem til þekkja, t.d. nikótíntyggjó, þú þarft verkfæri til að geta opnað það, ég komst að því. En ég er orðinn ofboðslega þreyttur á plastflöskum bara yfirhöfuð. Mér finnst það komið langt út yfir allan þjófabálk, offlæðið af þessu. Þetta safnast upp á heimilum, það er mikill sóðaskapur að þessu. Það er einhver siðferðisleg skylda manns að fara með þetta í endurvinnslu sem þýðir að þetta lekur oft líka einhverri svona drullu í bílinn sem lyktar og það er mikill sóðaskapur að þessu. Eigum við ekki bara að reyna að fara að hætta þessu? Við búum í landi, af því menn eru að tala um þetta land og sérstöðu þess, þar sem við höfum aðgang að einhverju hreinasta og tærasta drykkjarvatni í heimi og samt koma túristar hérna t.d. og kaupa sér átappað vatn úr plastflöskum í verslunum þegar vatnið okkar er fyllilega drykkjarhæft og gott. (Forseti hringir.) Eigum við ekki bara að skera upp herör gegn, ekki bara töppum heldur flöskunum líka og fara bara að drekka þetta vatn og halda því á lofti?