hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir þetta. Hann í raun bara tekur undir áhyggjur mínar af þessu máli og er nú samt í stjórnarmeirihlutanum sem er með þetta mál á sinni könnu þannig að það leynast víða bandamenn stjórnarandstöðunnar í þessu (Gripið fram í.) enda er hv. þm. Jón Gnarr skynsamur maður með eindæmum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) [Hlátur í þingsal.] En tappaleysið, ég held nefnilega að það sem menn átta sig ekki alveg á er það að plast almennt hefur verið mikil gæfa fyrir mannkynið þrátt fyrir að örplast finnist nú víða í lífverum og sérstaklega í lífverum sem eru hátt í fæðukeðjunni. Plast hefur hjálpað okkur til að halda matvælum ferskum mánuðum og árum saman. Gúmmíefni hafa passað upp á það að við fjölgum okkur ekki of hratt. Síðan er það sem hv. þm. Jón Gnarr gæti tekið upp hjá sjálfum sér og verið forvígismaður um, að það sé tappalaust Alþingi. Hv. þingmaður getur kannski komið að því.