hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gnarr að koma hingað upp í pontu. Hann kannski beindi ekki miklu til mín en lýsti ákveðnum vanda sem er til staðar, annar en plasttappavandinn en af sama meiði. Það mætti í raun beina því til Evrópusambandsins um þessi tengi þarna á milli í sokkunum, að hafa það plast almennt úr stökku plasti. Það er til teygjanlegt plast og það fer alveg eftir gerð plastsins. En ég get kannski komið með fyrir þingheim og þá sem á hlusta ákveðna nálgun á það hvernig hægt er að komast hjá því að skemma sokkana sína. Þá er ég ekki að tala um að klippa plastið með skærum því að það veldur ákveðinni hættu á því að maður klippi í sokkinn. Það hef ég gert. En þeir sem þekkja eðlisfræðina sína vel þekkja ákveðið hugtak sem heitir atlag. Það gengur út á það að því hraðar sem þú gerir eitthvert verk því meira atlag. Ef ég væri með svamp hér og egg og léti eggið detta á svampinn þá tæki það eggið ákveðinn tíma að lenda á svampnum. Þá er minna atlag. Ef ég væri með stein undir og léti eggið detta þá gerist þetta á sekúndubroti og atlagið er minna. Það sama á við um plastþráðinn þarna á milli. Ef þú tekur þéttingsfast á milli sokkaparanna, þótt þau séu þrjú, og rífur í sundur eldsnöggt þá slitnar þetta nánast alltaf án þess að sokkarnir skemmist.