156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[12:54]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir ágæta ræðu. Það var þó eitt sem ég saknaði svolítið og ég beið spenntur af því að mér fannst nálgunin skemmtileg og kómísk; hann tíndi ýmislegt til úr greinargerðinni sem varð til þess að þegar maður var að lesa hana yfir þá brosti maður dálítið oft út í annað. En það var eitt atriði sem ég var eiginlega að vona að hv. þingmaður kæmi inn því að það vakti talsverða athygli mína í málflutningi hv. þm. Jóns Gnarrs hér áðan og í orðaskiptum hans við hv. þm. Jón Pétur Zimsen., þ.e. að hv. þm. Árni Helgason vék ekkert að plastböndunum í sokkapakkningunum. Ég hefði haft talsverðan hug á því, frú forseti, að vita afstöðu hv. þingmanns til þeirra umbúða. Ég þekki þessa lýsingu og deili þessari reynslu með áðurnefndum þingmönnum og þetta hefur valdið talsverðum skemmdum á vörum. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ekki mætti leysa þetta með ísaumaðri festingu eins og tíðkaðist kannski fyrir einhverjum árum. Við sem erum aðeins eldri hérna munum kannski eftir því að þetta var ekki alltaf svona. Eins má velta fyrir sér hvort yfirleitt sé þörf á að festa pörin saman. Þegar þau eru keypt í þessum pakkningum, tvö, þrjú eða fleiri saman, þá eru þau tiltölulega föst í þeirri pakkningu. Það má velta fyrir sér hvort pappapakkningin dugi ekki. Kannski vekur það líka upp aðra spurningu: Ég man ekki betur en að fyrir ekki svo mörgum árum hafi öll þessi umræða snúist um að nota ekki pappa, við værum að slátra Amazon-skógunum. Maður upplifði sig eins og glæpamann ef maður fór illa með pappír. En nú hefur þetta verið fært yfir á plastumbúðirnar. En ég hefði mikinn áhuga á því, frú forseti, að vita hvað hv. þingmanni þykir um festingarnar í sokkapökkunum.