156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[12:57]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég get reyndar upplýst að ég kannaðist að vísu ekki mjög við þessa sokkaumræðu hér áðan. Ég kaupi mína sokka greinilega með öðrum aðferðum en flestir þingmenn. Ég fer í Bláu húsin í Faxafeni og geri magninnkaup af herrasokkum svona einu sinni á ári og þeir koma bara beint af kúnni þannig að ég slepp við þá erfiðu lífsreynslu sem þingmenn hafa greinilega af því að skera sig á plasti. En það má hins vegar halda því til haga að ég á í mjög sérstöku sambandi við plastumbúðir að öðru leyti, ég veit ekki hvort ég er eitthvað óvenjulega óheppinn; maður hugsar líka oft um þetta út frá umhverfisvinklinum. Ég get nefnt sem dæmi að ég keypti mér prentara um daginn. Umbúðirnar í kringum eitt svona tæki — þetta er óendanlegt, plastið oft hart, maður þarf jafnvel að beita skoltinum til að opna þetta með tilheyrandi hættu. Ég hef oftar en ekki lent í vandræðum með þetta. Maður veltir því líka stundum fyrir sér, og þetta er kannski eitt af því sem ekki er tekið á, af því að frumvarpið snýst bara um tiltekna tappa á tilteknum flöskum, hversu ótrúlega mikið af plastumbúðum er oft utan um vörur, tæki o.s.frv., sem er auðvitað til algjörrar óþurftar. Það mætti auðvitað líka taka á því með skýrum hætti.