hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég samgleðst hv. þingmanni að þurfa ekki að glíma við sokkapakkningarnar. Ég hugsa að ég verði að kíkja í Bláu húsin í Skeifunni og athuga hvort það sé ekki eitthvað þar sem ég get nýtt mér. En hv. þingmaður vék einnig að þessari miklu plastnotkun í pakkningum yfirleitt. Ég held að það sé eitthvað sem við öll þekkjum, að við deilum þeirri reynslu þegar við erum að kaupa okkur vörur, að það er oft talsverð vinna að rífa utan af tiltölulega litlum hlutum. Á meðan hv. þingmaður var að rekja raunir sínar yfir því hér þá duttu mér einmitt í hug pakkningar sem fara alveg sérstaklega í taugarnar á mér og hefði viljað að hæstv. ráðherra hefði frekar einbeitt sér að í þessari umræðu, en það eru pakkningar utan um skæri og hnífa. Þær krefjast þess yfirleitt að maður sé annaðhvort með skæri eða hníf til að geta opnað þær. Þegar maður kaupir skæri eða hníf þá er það yfirleitt vegna þess að þá vantar mann skæri eða hníf. Þetta hefur oft valdið talsverðu hugarangri og farið hefur verið í ýmsar tilraunir. Það hefur verið reynt að naga umbúðirnar en plastið í þessu er þeirrar gerðar að það virðist algjörlega útilokað að sigrast á því með tönnunum. Oftar en ekki hefur þetta bara endað í einhvers konar andlegu niðurbroti, þar sem lífið hefur verið frekar dökkt og allar áhyggjur, eins og það hvort maður á fyrir reikningum um mánaðamótin eða mat handa börnunum eða þess háttar, bara gleymast um stund. Það er hugsanlega eini kosturinn við þessar umbúðir að maður fær þetta augnablik þar sem maður er algjörlega einbeittur í einhverju einu verkefni. Það hefur stundum verið sagt um okkur karlmenn að það sé akkúrat þar sem okkur líður best en ég hefði sjálfur kosið að fá útrás fyrir það við aðra glímu en að opna pakkningar utan um hnífa eða skæri.