hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir andsvar sitt. Ég get auðvitað tekið undir með honum í þessu. Þetta er kannski að mörgu leyti heimspekileg spurning: Ef maður þarf skæri eða hníf til að opna umbúðir utan um skæri og hníf — þetta er svona, ef ég má sletta hér, „Catch 22“, virðulegur forseti. En mig langaði kannski bara til að taka þessa umræðu aðeins áfram út frá greinargerðinni, að velta þessu upp, og ég held að þingheimur ætti ekki endilega að sofa á því að þetta er dæmigert lítið stórt mál. Mörg af þessum EES-málum eru svo tæknileg að þau hafa kannski ekki neina raunverulega þýðingu fyrir hið hversdagslega líf fólks. En þetta er eitt af þeim málum og það er eitt af því sem mætti koma aðeins inn í þessa umræðu hér, hvort við séum hreinlega að ganga of langt í að regluvæða eðlilega og sjálfsagða hluti en sleppa aftur öðrum. Það er svolítið athyglisvert hversu gríðarlega margt er einhvern veginn ekki undir þarna. Ég held að það sé eitt af því sem þingheimur mætti aðeins velta fyrir sér, bara svona með almennum hætti.