hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það er í rauninni ótrúlegt að við skulum standa hérna og vera að ræða þetta mál. Mörgum kann að að þykja að þetta sé lítið frágangsmál að renna hér í gegn einhverjum EES-samþykktum og -reglugerðum og öðru því sem kemur frá Evrópusambandinu en það er aðeins stærra en það. Þetta litla mál er í rauninni kannski ákveðin birtingarmynd þess á því hvaða vegferð við erum. Ég ætla að fá að lesa úr 1. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:
„Eftirfarandi breytingar verða á 37. gr. g laganna:
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Eftirfarandi einnota plastvörur sem eru með tappa eða lok úr plasti er einungis heimilt að setja á markað ef tapparnir og lokin eru áfram föst við vörurnar á meðan fyrirhuguð notkun á þeim stendur yfir: drykkjarílát að rúmmáli allt að þremur lítrum sem eru notuð undir vökva, þ.m.t. tappar þeirra og lok, svo sem flöskur fyrir drykkjarvörur og samsettar umbúðir fyrir drykkjarvörur. Ákvæði þetta tekur ekki til bolla og glasa fyrir drykkjarvörur, drykkjaríláta úr gleri eða málmi sem eru með tappa eða lok úr plasti, drykkjaríláta sem eru ætluð fyrir og notuð undir matvæli sem eru í vökvaformi og notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi eða til tappa eða loka úr málmi sem eru með innsigli úr plasti.“
Þetta er í rauninni birtingarmynd þess og er í rauninni það sem við erum að horfa upp á í Evrópu í dag þar sem stjórnmálamenn og embættismenn, þar sem skriffinnskukerfið ætlar að setja okkur lög og reglur um allt milli himins og jarðar. Skriffinnunum og embættismönnunum og stjórnmálamönnunum mörgum hverjum er ekkert óviðkomandi í okkar daglega lífi, bara ekki neitt. Það er kannski ágætt ef við horfum á í hvaða stöðu Evrópa er komin núna. Nýlega kom Draghi-skýrslan út, sem segir: Evrópa er að dragast aftur úr á öllum sviðum. Öll nýsköpun, allar framfarir, allt, allir sem ætluðu að fara að vinna í gervigreind. Hér koma menn upp í annarri hverri ræðu og tala um gervigreind. En hvert fara þeir sem ætla að stofna gervigreindarfyrirtæki? Fara þeir til Evrópu til að stofna gervigreindarfyrirtæki? Nei, þeir fara til Bandaríkjanna. Við sjáum t.d. að ef Evrópumaður kaupir iPhone 16, sem ég held að sé nýjasti iPhone-inn, og Bandaríkjamaður kaupir iPhone 16, þá er það bara ekki sami iPhone-inn af því að reglugerðirnar og tilskipanirnar í Evrópu eru búnar að sjá til þess að við höfum ekki aðgang að sömu forritum í iPhone og Bandaríkjamaður. Öll gervigreindarforritin sem eru í iPhone eru ekki í iPhone hér af því að Evrópusambandið er búið að setja tilskipanir, reglugerðir og annað sem eru búnar að útiloka þetta. En hér í ræðustól kemur varla nokkur maður upp án þess að ræða gervigreind. Samt sem áður dettur okkur í hug að standa hér og ræða um það að þvinga neytendur til að vera með áfasta tappa. Það er ekkert skrýtið að þetta hafi setið fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Þetta er algjört dellumál. Þetta á bara að sitja fast í einhverjum þingflokkum og þetta á aldrei að vera hér til umræðu á Alþingi Íslendinga. Það er bara mín skoðun.
Ég velti því fyrir mér: Hvar eru þingmenn Viðreisnar núna? Reyndar er hv. þm. Jón Gnarr hér, hann er búinn að koma upp og fjalla um þetta mál á sinn skemmtilega og kómíska hátt, en þarna er Viðreisn í ákveðnum vandamálum. Þeir fjalla um frelsið. Þeim er mjög tíðrætt um frelsi þegar það hentar. Þeir voru ekki hér að ræða um frelsi til að við myndum fá að nýta hluta af útvarpsgjaldinu okkar. Það frelsi var Viðreisn tiltölulega óviðkomandi. Að ræða frelsið núna til þess að neytendur ráði því sjálfir hvort tapparnir séu áfastir eða ekki — nei. Það er nefnilega það sem togast á, þetta margumrædda frelsi sem menn svo forðast að koma og ræða af því að menn eru svo uppteknir af því að reyna að koma okkur í helsi Evrópusambandsins. Það togast á um að við getum ekki og þingmenn Viðreisnar geti ekki komið hér upp og talað um frelsið og talað um, eins og held ég að búi öllum í brjósti, svona dellumál eins og þetta. — Fyrirgefðu, forseti.
En þá skulum við aðeins velta einu fyrir okkur af því að við erum að tala um plastmengun. Það er stofnun sem heitir The Chartered Institution of Water and Environmental Management. Hún hefur tekið saman lista yfir stærstu plastmengandi þjóðir í heimi. Og hverjar skyldu þær nú vera, herra forseti? Jú, Indland trónir þar á toppnum með 126,5 milljónir kílóa af plastmengun. Kína kemur á eftir með 70,7 milljónir kílóa. Síðan kemur Indónesía með 53,3 milljónir kílóa, Brasilía með 38 milljónir kílóa, Taíland með 22,8 milljónir kílóa, Mexíkó með 3,5 milljónir kílóa. Og takið eftir að af fyrstu fimm eru fjögur í Asíu, þarna í topp fimm, bara Brasilía sem er það ekki. Mexíkó er með 3,5 sem er næstum 20 milljón kílóum minna heldur en Taíland sem er með um 22,8. Síðan kemur Egyptaland með 2,5 milljónir kílóa, Bandaríkin með 2,4 milljónir kílóa, Japan með 1,84 milljónir kílóa og síðan rekur Bretland lestina í topp tíu með 0,7 milljónir kílóa. Og við erum að velta fyrir okkur að við ætlum að passa það að nokkrir tappar séu nú fastir á flöskunum til þess að valda neytendum stórkostlegum ama og, eins og kom fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar, gera lífið mun leiðinlegra með pappaskeiðum, papparörum og áföstum töppum.
Þá er nú líka kannski ágætt að velta því fyrir sér, af því að við erum að tala um plastmengun: Hver er helsta uppspretta örplastsmengunar á Íslandi, af því að við erum nú að tala um plastmengun? Í skýrslunni Örplast í hafinu við Ísland — Helstu uppsprettur, magn og farvegir í umhverfinu, frá 2019, segja skýrsluhöfundar, með leyfi forseta: „Stærsta uppspretta örplasts í umhverfinu á Íslandi tengist bifreiðaumferð […] en slit á dekkjum og vegmerkingum er um 4/5 allrar örplastslosunar hérlendis.“
Ég geri ekki ráð fyrir því að það sé verið að leggja til að við hættum að keyra bíla eða merkja vegi. Aðrar stórar uppsprettur eru einna helst vegna málningar og affalls vegna þvotta á fatnaði úr gerviefnum. Af þessum fatnaði úr gerviefnum man ég eftir umræðum sem áttu sér stað í útvarpinu um að stór hluti af þessu er útivistarfatnaðurinn okkar sem er með mikið af gerviefnum.
Þannig að, herra forseti, við erum ekki bara að gera lífið leiðinlegra, þetta er í rauninni stórmál af því að þetta er birtingarmynd þess hvað við, þingmenn, löggjafarþingið, ætlum að ganga langt í því að fara dýpra og dýpra í reyna að skipta okkur af daglegu lífi landsmanna, þjóðarinnar, hvað við ætlum að ganga langt í því að setja svona dellulög til þess að auka kostnað fyrirtækjanna í landinu, minnka samkeppnishæfni okkar og búa til — og þetta er náttúrlega afleiðing af því að í annarri hverri stofnun eru komnir loftslagssérfræðingar og alls kyns umhverfissérfræðingar. Þetta er orðinn bara heill iðnaður af embættismönnum sem verða að hafa það hlutverk að reyna að setja okkur, restinni af þjóðinni, svona lög. Þetta er óboðlegt og ég vildi að Samfylkingin hefði borið sömu gæfu og Sjálfstæðisflokkurinn til að láta þetta mál bara daga uppi í þingflokknum. Það hefði í rauninni verið eina vitið og ég vona að Samfylkingin endurskoði afstöðu sína í þessu og ríkisstjórnarflokkarnir. Og ég hefði gaman af að sjá Viðreisn koma hérna upp og tala í rauninni fyrir frelsinu sem þeim er svo tamt að tala um fyrir kosningar, en það ber minna á því þegar í þingsal er komið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)