hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hvert erum við að stefna? Hvert er Evrópa að stefna núna? Evrópa er að sjá að Evrópa er að dragast aftur úr. Þeir sem ætla að stofna fyrirtæki, eins og ég sagði áðan, eru að fara til Bandaríkjanna. Ég held að það séu eitt eða tvö fyrirtæki í Bandaríkjunum sem hafa jafn mikið markaðsverðmæti og allur evrópski markaðurinn. Evrópa er að dragast aftur úr. Volkswagen er að loka núna verksmiðjum í fyrsta skipti í 100 ára sögu fyrirtækisins. Þýskaland er að horfa upp á efnahagslægð. Af hverju er þetta? Af því að í gegnum tíðina höfum við búið til umhverfi í Evrópu sem er að draga úr samkeppnisforskoti Evrópu. Evrópumenn eru ekki að nýta sér þá nýjustu tækni og þær nýjustu framfarir sem eru að verða. Þá gerist það óhjákvæmilega að þeir sem hafa kjark og þor, frumkvöðlar og aðrir, leita þá þangað sem hægt er að skapa og fá andrúm til sköpunar og nýsköpunar og það er þá t.d. í Bandaríkjunum. Þannig að stóru verkefnin eru — eins og kom fram í listanum sem ég las upp áðan er öll plastmengun í hafinu meira og minna frá nokkrum Asíuþjóðum. Þetta fer óhindrað í árnar og út í hafið. Það eru kolaorkuverin í Asíu sem eru stóra vandamálið varðandi loftmengun. Við skulum fara að tala um loftslagsmálin eins og þau eru en ekki fara að þvinga fólk til að vera með tappana í andlitinu.