hollustuhættir og mengunarvarnir.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir gott svar. Ég hjó sérstaklega eftir því í svari hv. þingmanns að hann vék þar að hlutum sem ég hef talsvert verið að hugsa um líka sem er þessi flutningur starfa og þar af leiðandi verðmætasköpunar frá Evrópu. Hv. þingmaður nefndi Volkswagen. Ég held að dæmin séu nú meira að segja fleiri frá Þýskalandi. Þessi störf og þessi verðmætasköpun er þá að leita að einfaldara og viðráðanlegra regluverki sem einkum og sér í lagi er að finna í Indónesíu, Asíu, Bandaríkjunum og því eru öll teikn á lofti um að framtíðarverðmætasköpun sé að flytjast til þeirra svæða. Vissulega ræður hin evrópska innleiðing núna í íslenskan rétt, litla tappa málið, kannski ekki úrslitum í þessu en það er ein táknmyndin af því sem er að gerast, þ.e. hvernig við ætlum að bjarga heiminum, hvernig við ætlum að vera fyrirmynd allra annarra þrátt fyrir að framlag okkar til málanna sé kannski fyrst og fremst og langmest fólgið í því að nýta þá íslenska orku til að flytja framleiðsluna hingað. Þannig getum við raunverulega lagt eitthvað til málanna. Í stað þess að framleiða vörur með olíu í Asíu eða kolum í Bandaríkjunum þá getum við gert það hér með fallvötnum, með jarðvarma o.s.frv.
En svo er annað sem mér dettur í hug að spyrja hv. þingmann að því að hann vék að Bandaríkjunum annars vegar og svo má nefna Kína í þessu samhengi líka: Hvernig verður þá fyrir okkur í framtíðinni þegar fjárfestar verða farnir að flytja framleiðslu sína til þessara landa, hvernig verður fyrir okkur að flytja vörur frá þessum þjóðum aftur til okkar, vörur sem eru að koma frá Bandaríkjunum til okkar? Eins má, herra forseti, nefna Kína í því sambandi þegar verðmætasköpunin fer í auknum mæli þangað. Þetta eru þjóðir sem eru ekki að fara að vinna eftir þessum stöðlum.