hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ef við tölum aðeins um Þýskaland, af því að við vorum að tala um hvað gerðist í Þýskalandi; Þýskaland hefur hreinlega orðið fórnarlamb eigin stefnu. Þeir gáfu eftir gagnvart græningjunum og öðrum í því að loka grænni orku eins og kjarnorkuverum og hafa nú verið að keppast við að starta gömlu kolaorkuverunum aftur. Og þetta er stefnan. Þetta er nú öll vitleysan sem Evrópa er að lenda í núna. Það er nú bara þannig að ef við erum að setja okkur þyngri reglur og tilskipanir, sem leggja þyngri kvaðir og meiri kostnað á fyrirtækin hér en annars staðar, erum við að minnka samkeppnisforskot. Og við sem þjóð, sem útflutningsþjóð, höfum byggt upp þetta velferðarsamfélag og okkar velsæld á því að flytja út vörur og vera samkeppnishæf. Sjáum bara þann árangur sem við höfum náð í vinnslu á fiski umfram margar aðrar þjóðir, bara sem gott dæmi. Það er bara þannig að framleiðni á mann og hagvöxtur er undirstaða velferðar og velsældar á Íslandi og það eru engar tilskipanir og það eru engar reglugerðir sem munu geta bætt upp fyrir það og við verðum að passa okkur og huga að því á hvaða vegferð við erum. Ég geri mér því alveg grein fyrir því að þetta tappamál er ekkert stærsta málið en þetta er fordæmisgefandi um það hvað við erum tilbúin að ganga langt í því að reyna að skipta okkur af daglegu lífi borgaranna og auka álögurnar á atvinnulífið í landinu.