156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[13:21]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka 3. þingmanni Norðausturkjördæmis ræðuna. Mig langaði að nýta þetta tækifæri að koma hér upp og spyrja hann, þar sem hann er nýr þingmaður líkt og ég, hvað honum finnst, komandi úr atvinnulífinu, um gæði umræðunnar sem hér á sér stað í þingsal Alþingis um þetta tappamál, um þessa innleiðingu á þessari EES-gerð. Það ber að taka það fram að þegar þetta mál var tekið fyrir í EES-nefndinni var Sjálfstæðisflokkurinn með utanríkisráðuneytið og gerði engar athugasemdir við þetta mál, en nú þegar verið er að leggja það fram hér er ákveðið að þetta sé einhvers konar málþófsmál (BHar: Ha?) þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar koma upp og lesa upp úr frumvarpinu og skýrslum sem tengjast ekki málinu sem um ræðir. Það er farið um víðan völl. Mig langaði að spyrja þennan nýja þingmann, sem er að stíga sín fyrstu skref á nýjum vinnustað, komandi úr atvinnulífinu þar sem skilvirkni skiptir máli, þar sem við gætum verið að fjalla um mikilvægari mál, komið framfaramálum fyrir þjóðina í gegn: Hvað finnst honum um að vera kominn í þessa umræðu?