156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[13:22]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir spurninguna. Ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni að hér á köflum er nú umræðan búin að vera kómísk en hún endurspeglar kannski í rauninni svolítið um hvað málið er, að við skulum vera að ræða það hér á Alþingi að vera með áfasta tappa á flöskum og að við skulum í alvörunni vera að ræða það að það sé eitt af þeim málum sem ríkisstjórnin setur hér sem eitt fyrsta málið til að klára, þ.e. áfastir tappar á flöskum. En af því að þú nefnir það, og það er rétt, ég er nýr á þingi eins og þú og ég kem úr atvinnulífinu, þá átta ég mig á því, og það er kannski það sem ég horfi á, að ef við hleypum öllum svona málum í gegn þá erum við alltaf, smátt og smátt, að setja þyngri lóð á vogarskálar kostnaðar fyrir atvinnulífið, það minnkar samkeppnishæfni okkar og fleira í þeim dúr sem gerir okkur — og skapar kostnað fyrir neytendur. Þannig að ég held að þetta sé svona lítið prufumál. Ég held reyndar að hv. þingmaður sé alveg sammála mér í því að þetta er óttalegt dellumál og ég geri ráð fyrir að hann sé sammála mér í því að það væri best ef við værum ekkert að ræða þetta hér í þinginu, að skylda fólk að hafa áfasta tappa og vera svo berjast við það hvernig það eigi að drekka úr flöskunni.