hollustuhættir og mengunarvarnir.
Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ef ég set þetta mál í samhengi við atvinnulífið, annars vegar það að innleiða með réttum hætti EES-mál, hafa aðgang að sameiginlegum evrópskum viðskiptamarkaði og því að þurfa að innleiða þessa EES-gerð um áfasta plasttappa sem atvinnulífið hefur nú þegar innleitt hér á landi, þá er það alveg skýrt í mínum huga að forgangurinn er aðgangur að evrópska markaðnum. Ég vil í rauninni aftur lýsa vonbrigðum með það að í einu af þessum fyrstu málum séum við komin í einhvers konar tafaleiki þegar það snýr að þessu, sérstaklega þegar maður rýnir dagskrá þingfundarins. Hvað er fram undan á dagskrá? Hvað er það sem minni hlutinn vill ekki að verði tekið til umræðu hér síðar í dag? Er það rammaáætlun? Er það orkuöryggi þjóðarinnar? Er það þingmaður Norðausturkjördæmis sem ætlar að standa hér með tafaleiki svo að við getum ekki samþykkt eða farið að vinna með rammaáætlun, mál sem skiptir Norðausturkjördæmi lykilmáli, mál sem Sjálfstæðisflokkurinn gat því miður ekki komið almennilega í gegn hér þegar þau voru við stjórn. Nú þegar komin umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem ætlar að leggja fram rammaáætlun strax, tryggja orkuöryggi þjóðarinnar strax, hvað gera Sjálfstæðismenn? Hjálpa þeir til? Nei, þeir fara í málþóf um áfasta plasttappa, EES-gerð sem þeir mótmæltu ekki á sínum tíma (Gripið fram í.) þegar þeir höfðu tækifæri til. Þannig að ég gef lítið fyrir þessa umræðu. Það er dapurlegt að fylgjast með mælendaskránni ef þeir hv. þingmenn sem þar eru ætla ekki að ræða þetta mál eða eru tilbúnir að fara í þau mál sem eru á dagskrá, orkuöryggi þjóðarinnar.